Gerðir kirkjuþings - 01.01.1985, Blaðsíða 57
50
Tillaga sr. Halldórs Gunnarssonar,
Kirkjuþing 1985 þakkar fyrir Limaskýrsluna og þá umfjöllun,
sem hún hefur fengið og telur að um undraverðan árangur sé
að ræóa í starfi þeirra kirkna sem tekið hafa þátt í "Trúar-
og skipulagsmálanefnd" Alkirkjuráðsins.
Kirkjuþing vill taka undir mörg atriði sem, koma fram í
nefndaráliti nefndar sem prestastefna 1985 kaus til þess að
gera tillögu aó svari íslensku kirkjunnar við Limaskýrsl-
unni, en telur hins vegar aó áður en íslenska þjóðkirkjan
fer að lýsa því yfir í hvaða greinum hún sé sammála eða
ósammála öórum kirkjudeildum, þurfi að vera skýrar mótað
hvað íslenska þjóókirkjan játar og boóar í þeim þremur
þáttum, sem Limaskýrslan fjallar um.
Kirkjuþing leggur áherslu á eftirtalin grundvallaratriði:
1. Kirkjan er ein, af því aó Drottinn hennar er aðeins
einn, Jesús Kristur. Það hlýtur að liggja aó baki
allri viðleitni til einingar kirkjudeilda.
2. Kirkjan er heilög, af því að hún þiggur helgi sína frá
Kristi, sem hefur frátekið hana sér til eignar um ei-
lífð. Helgi sakramentanna, skírnar og borðs Guós, er
þannig frá Kristi rótfest í boði hans og flytur upp-
fyllingar fyrirheita hans.
3. Kirkjan er almenn, af því að hún á erindi við alla menn
um gjörvalla jörðina á öllum tímum og er og hefur verió
farvegur þess hjálpræóis, sem nægir til eilífs lífs.
4. Kirkjan er postulleg, af því að hún byggir trú sina og
kenningu á þeirri opinberun Guðs í Jesú Kristi, sem
geymd eru í orðum Heilagrar ritningar og boðast fyrir
vitnisburð postulanna, sem kallaðir voru af frelsara
sínum og Drottni til þess að flytja fagnaðarerindið út
um gjörvallan heim. Köllun allra kristinna manna til
þeirrar boóunar er einnig komnin frá hinum krossfesta
og upprisna Drottni Jesú Kristi sjálfum, og þar eiga
vígsluembætti kirkjunnar rætur sínar.
Greinargeró: Þau áhersluatriði sem hér eru nefnd í fjórum
töluliðum eru tekin upp úr "Áliti starfsháttanefndar" bls.
9. úr undirkafla: "Eóli kirkjunnar".
Málinu visað til allsherjarnefndar (Frsm. sr. Jón Bjarman).
Lagói hann fram álit nefndarinnar og gerði grein fyrir
breytingum, sem hún leggur til, aó geróar verði.
I kaflanum um skírn, siðasta málsgrein svars við 2. spurn-
ingu verði þannig:
"Samtimis viljum vér lýsa vilja vorum til að taka til endur-
skoóunar skirnarbreytni vora og varast kæruleysislega með-
feró skirnarinnar. Eru uppeldismálin þar i brennidepli,
foreldrafræðsla og aukin safnaðarvitund. Hins vegar er oss