Gerðir kirkjuþings - 01.01.1985, Blaðsíða 68
61
Þessi áhersluatriói hefur oss skort og umræður um trúar-
vitnisburð og félagslega hjálp því oft farið á víð og dreif.
Hér erum vér hvött til þess aö hugsa þessi mál á nýjan leik
í því skyni að ítreka eininguna i lífi, boóun og vitnisburöi
hins kristna manns.
ÞJÖNUSTA
1. Að hve miklu leyti getur kirkja þín séó í þessum texta
trú kirkjunnar á öllum öldum?
Mikilvæg sýnist oss samstaðan um að hefja umræðuna um þjón-
ustuna á köllun alls Guós lýös. Nýja testamentið horfir á
kirkjuna í heild, köllun hennar og hlutverk. Aðeins út frá
því heildarsjónarmiði er hægt að nálgast spurninguna um mis-
munandi köllun einstakra lima.
Þá er mikilvæg ábendingin um, aó skipulag kirkjunnar hafi
þróast á löngum tíma og ókleift sé að nota Nýja testamentió
í því skyni aó finna þar staðal fyrir skipulag kirkjunnar
(sbr. 19. gr.). Orðaskýringin i 7. gr. er mjög gagnleg bæði
til þess að átta sig á umræðunni í kaflanum og til þess aó
skýra fyrir sjálfum oss þær spurningar sem vér þurfum að
hafa í huga, er vér snúum oss aö því aó íhuga spurninguna um
þjónustu kirkjunnar.
Vér sættum oss við aó nota hió almenna oró "þjónusta" um
köllun kirkjunnar í heild og orðasambandið "vígó þjónusta"
um sérstaka þjónustu ákveðinna manna innan kirkjunnar.
Leitumst vér við aó nota þessi oró í þýðingu vorri og teljum
þau samræmast postullegri trú.
Vér tökum líka undir rökin fyrir tilvist hinnar vígðu þjón-
ustu í 8. gr., þar sem segir, aö kirkjan þurfi ætíö á mönnum
að halda, sem opinberlega geti minnt hana á, að hún er um
allt lif sitt háó Jesú Kristi. Eru postularnir fyrirmynd
þeirrar þjónustu í kirkjunni samtímis því sem þeir eru
fyrirmynd kirkjunnar í heild (9. og 10. gr.).
Gerð er góð grein fyrir þróuninni í fornkirkjunni yfir í
fyrirkomulag hinnar vígðu þjónustu í þríþættri þjónustu
biskupa, öldunga (presbytera(presta)) og djákna. Þó aó
erfitt sé aó fullyrða um uppruna þess skipulags og þróun i
einstökum atriðum, var þaó alls staðar við lýói um hina
almennu kirkju á 3. öld. Er áhersluatriói í skýrslunni, að
þessi þríþætta þjónusta geti i senn stuólað að því að tjá þá
einingu, sem vér leitum aó og einnig veriö leiðin að því
marki (22. gr.). Þá er og bent á, að nokkrar kirkjur, sem
ekki hafa haldið hinu þríþætta skipulagi, hafa í raun haldió
vissum þáttum úr upprunalegri mynd þess (24. og 37. gr.).
Snertir sú ábending vora kirkju sérstaklega. A 16. öld var
hin sögulega vígsluröð biskupanna rofin hér á landi, en mynd
hinnar þríþættu þjónustu hefur samt sem áður haldist hér
allt til þessa dags.