Gerðir kirkjuþings - 01.01.1985, Blaðsíða 76
69
Nú ber dag, er greinir i 1. tölulið 1. málsgr., eftir því
sem vió getur átt upp á 1. maí eða 17. júní, og standa
ákvæði 4. og 5. gr. þá ekki því í vegi, að stofnað sé til
samkomu og skrúðgöngu og þesskonar athafna á tímabilinu
milli kl. 10 og 15, en viröa skal þá ákvæói 3. gr.
III. kafli
Athafnir sem andstæðar eru helgidagafriði
3. gr.
öheimilt er að trufla guðsþjónustu eða aóra kirkjuathöfn
með hávaóa aó nauðsynjalausu, eða öðru því, sem andstætt
er helgi hennar.
4. gr.
Meðan helgidagafriöur ríkir samkvæmt framansögðu er eftir-
farandi starfsemi óheimil:
1. Opinbert skemmtanahald eða sýningar. Skemmtun er
talin opinber samkvæmt lögum þessum, ef aðgangur að
henni er frjáls almenningi eóa fyrir óákveöinn hóp
manna eóa fyrir félagsmenn og boósgesti þeirra, ef
félag, samtök manna eöa stofnun gengst fyrir samkomu,
fundi eöa öðru því, er hænir aó mannsöfnuð. Skiptir
ekki máli i þvi sambandi, hvort aðgangseyrir er
krafinn eóa ekki og gegnir einu, hver fundar-,
samkomu-, eóa sýningarstaður er eða hvort hann er
utan húss eóa innan. Til skemmtana í þessu sambandi
sbr. og 3. og 4. tölulió teljast:
a) Dansskemmtanir, fjölleikahús, revíusýningar og
aðrar skemmtisýningar.
b) Leiksýningar, balletsýningar,kvikmyndasýningar,
söngskemmtanir og hljómleikar, dans- og leikfimi-
sýningar.
2. Markaðir, vörusýningar og verslunarstarfsemi og við-
skipti. Undanþegnar þessu banni eru þó lyfsölur að
þvi er lyfjasölu varóar, brauð- og mjólkurbúðir að
því er varðar sölu á mjólk og mjólkurafurðum, brauóum
og kökum, bensínsölur, blaðsölur og tímarita og
blómasölur svo og verslunarskálar.
3. Skemmtanir, þar sem happdrætti eða bingó eða svipuð
spil eru höfó um hönd.