Gerðir kirkjuþings - 01.01.1985, Blaðsíða 110
101
sumar. Skýrsla þessi, sem gefin er út af landlæknis-
embættinu, hefir fengiö all verulega umfjöllun i flestum
fjölmiðlum, og kannski ekki beinlínis ástæóa til að vitna
í hana hér, heldur minna á það, sem þegar hefir komið
fram. Þó get ég ekki látið hjá liða aó taka hér með eina
málsgrein úr inngangi skýrslunnar, þar segir á bls. 2:
Áfengisneysla er almenn meöal nemendanna. Um 87% segist
neyta áfengis. Meirihluti nemendanna neytir áfengis
mánaöarlega eöa oftar. Rúmlega 40% yngstu piltanna og
tæplega 70% elstu piltanna sagðist hafa "dáió" vegna
áfengisneyslu og sömuleiðis um 40% stúlknanna. Könnunin
leiddi i ljós að nemendurnir eiga mjög auðvelt með að út-
vega áfengi. Rúmlega 20% nemendanna sagði að áfengis-
neysla foreldra eóa systkina hefði valdið erfiðleikum á
heimilunum. Þá er ljóst að upphafsaldur áfengisneyslu
verður sifellt lægri, 40 - 50% byrja áfengisneyslu um eóa
fyrir fermingaraldur.
Þrátt fyrir allt talið um meira frelsi, þá held ég aó
almenningi hafi verió þetta ljóst, og einnig það, að hér
hefir hallað meira á boróiö meó þvi aukna frjálsræöi i
áfengismálum sem þegar hefir komist á undanfarna áratugi.
Þar er það svo, að aukin hófdrykkja studd jákvæöu almenn-
ingsáliti hefir leitt til aukinnar ofdrykkju. Um þetta
efast þeir ekki sem lita hlutlægt á málin.
Kirkjulegir aóilar hafa ekki á undanförnum árum ályktaó
mikið um áfengismál. Ég álit aó það sé nú timabært, og aö
kirkjan sé beinlinis kölluó til að taka á i þessu máli
ásamt öllum þeim aóiljum öðrum meöal þjóðarinnar, sem
einnig svara sliku kalli.
Visað til allsherjarnefndar, er leggur til aö málið verði
afgreitt þannig (Frsm. sr. Hreinn Hjartarson).
"Kirkjuþing 1985 vekur athygli á þeirri hættu sem stafar
af vaxandi áfengisneyslu þjóðarinnar. Þingið varar einnig
vió þeim þrýstingi á stjórnvöld, aó sala og dreifing
áfengis verói gefin frjálsari en nú er og telur að slikt
muni leióa til meiri áfengisneyslu og jafnframt áfengis-
böls.
Kirkjuþing fagnar áhuga dóms- og kirkjumálaráðherra á
þessu málefni og skorar á hann, menntamálaráöherra, heil-
brigóisráðherra og biskup Islands að beita sér fyrir
þjóðarátaki gegn þessari vá, til dæmis með þvi aó gangast
fyrir "áfengislausri" viku."
Samþykkt samhljóöa.