Gerðir kirkjuþings - 01.01.1985, Blaðsíða 23
16
þess aó auóvelda mönnum aó fylgjast meó verkefnum
kirkjuársins. Rætt hefur verió um, aó sú skrá verði í
árbókinni. Aó gefnu tilefni vil ég taka fram, aó sé eigi
með góóu móti hægt aó nota sunnudag, sem er sameiginlega
tiltekinn til starfa aó líknar og hjálparþjónustu eóa
öórum sérstökum verkefnum, þá er eðlilegt og sjálfsagt aó
velja til þess annan sunnudag, einn eóa fleiri eftir því
sem aðstæóur eru fyrir hendi í hverju prestakalli.
41. mál. Skýrsla trúar- og skipulagsnefndar Alkirkju-
raðsins
Skýrslan er eitt af stórmálum kirkjunnar um þessar mundir,
og er nú á dagskrá kirkjuþings. Skýrslan var fyrst lögó
fram í frumþýóingu á þinginu 1983. Þetta mál hefur þegar
verió rætt allmikió á kirkjulegum vettvangi. Mikil vinna
er þar aó baki, vió þýóingu á skýrslunni og túlkun hennar.
Sérstakar þakkir færi ég dr. Einari Sigurbjörnssyni pró-
fessor, sem þýddi skýrsluna og hefur fylgt henni eftir og
nú síðast sem form. synodusnefndar, en um hendur þeirrar
nefndar er hún til okkar komin frá prestastefnu.
Um mál þessi öll og tillögur er svo aó lokum þaó aó segja,
aó þeim var misjafnlega hægt aó fylgja eftir og koma í
framkvæmd.- Kirkjuráó reyndi aó gera þaó, sem i þess valdi
stóó til þess aó svo mætti verða. Vil ég hér meó færa
samráósmönnum mínum bestu þakkir fyrir mikinn dugnaó og
ánægjulegt samstarf, svo og biskupsritara, fyrir ritara-
störfin og alla aóstoó hans.
Á kirkjuþingum undanfarió höfum vió leitast vió aó af-
greióa hvert einasta mál, sem kom á dagskrá, - en málin
geta oróió svo mörg og umfangsmikil að ekki takist meó
góóu móti aó ræóa þau og afgreióa á svo stuttum tíma, sem
þingió hefur til starfa. Og þá má gera ráó fyrir, aó ein-
hver mál þurfi aó bíða til næsta þings. Þeirri ábendingu
vil ég koma á framfæri til nefnda og formanna þeirra, ef
mikil timaþröng verður, um þaó er þinginu lýkur.
Ég bió þess svo, aó samþykktir og tillögur sióasta kirkju-
þings megi fá góóan framgang til blessunar fyrir land og
lýó. Á þessum vettvangi höfum vió því stóra hlutverki aó
gegna aó vera "ráósmenn yfir leyndardómum Guós." En um
leió veróum vió í allri auómýkt aó játa, sem postulinn
forðum: "Þannig er þá hvorki sá neitt er gróðursetur, né
sá er vökvar, heldur Guð sem vöxtinn gefur"(l. Kor.3:7).
Eina af ræðum sínum endaói Jón Sigurósson forseti meö um-
mælum, sem eru eins og útlegging á þessum ritningartexta,
- er hann talaói fyrir máli, sem honum var hjartfólgið. -
Og það sama vildi ég mega segja um geróir siðasta kirkju-
þings: " ... en vér viljum samhuga biöja þann, sem veitir
allar góðar og allar fullkomnar gjafir, aö hann snúi þessu
máli og öllu öóru til heilla þjóö vorri um allan ókominn
tima, því nema hann haldi vöró, þá vaka varömennirnir til
einskis."
Guói felum viö geróir okkar.