Skírnir - 01.04.1991, Blaðsíða 22
16
INGI BOGI BOGASON
SKÍRNIR
lestra, sem áheyrnargestur, við háskólann í Leipzig1 og má vera að þau
Jóhann hafi kynnst þar.
Halldór Laxness2, og Kristinn E. Andrésson3 segja báðir að Jóhann
hafi „um fjögurra ára skeið“ stundað nám í þýskum fræðum við
háskólana í Leipzig og Berlín. Góðvinur Jóhanns, Gustav Wolf, skrifar
1925 að: „frá árslokum 1921 hefur hann [Jóhann] verið stúdent í
þýskum fræðum við háskólann í Lcipzig."4 Skúli Þórðarson segir að
Jóhann hafi verið við háskólanám í Leipzig 1923 en jafnframt koma
fram efasemdir hans um að Jóhann hafi ætlað sér að ljúka prófum:
I háskólanum stundaði Jóhann þýzkar bókmenntir af mesta áhuga, en
hinsvegar mun hann ekki hafa lagt mikla rækt við rit hinna hálærðu
prófessora um bókmenntirnar.
Um þýzka stúdenta sagði hann, að þeir væru lúsiðnir og yrðu
sprenglærðir í bókmenntunum með því að læra reiðinnar ósköp um
þær, en bókmenntirnar sjálfar læsu þeir ekki nema í útdrætti - eins-
konar skólaljóð.
Eg hygg mér sé óhætt að fullyrða, að hann hafi ekki haft í huga að
taka háskólapróf.5
Svo einkennilega vill til að engar skjallegar upplýsingar staðfesta að
Jóhann hafi verið við nám við háskólana í Berlín eða Leipzig.6 I
spjaldskrá háskólans í Leipzig yfir stúdenta frá þriðja og fjórða
áratuginum eru hins vegar nöfn Arnfinns Jónssonar, Hauks Þorleifs-
1 Skjalasafn Karl-Marx-háskóla, Leipzig: Alphabetische Liste der Hörer, II. Vom
SS 1920-mit WS 1926/27.
2 Halldór Laxness: „Af Jóhanni Jónssyni". Reykjavík 1986, s. 16.
3 Kristinn E. Andrésson: Islenzkar nútímabókmenntir. Reykjavík 1949, s. 82:
„Qóhann] sigldi til Þýzkalands haustið 1921 og stundaði nám í bókmenntum og
fagurfræði við háskóla í Leipzig og Berlín um fjögra ára skeið."
4 Gustav Wolf, s. 46.
5 Skúli Þórðarson, s. 18.
6 Samkvæmt bréfi, dagsettu 10. mars 1989, sem mér barst frá skjalasafni Karl-
Marx-háskóla í Leipzig, finnast engin skjöl um Jóhann Jónsson. í mars 1990
heimsótti ég skjalasafnið og ítrekaði þá ósk um að fá í hendur skjöl um Jóhann.
Þau fundust ekki. Tvö bréf bárust mér frá Humboldt-háskóla í Berlín, hið fyrra
frá 29. apríl 1990 og hið seinna, eftir ítrekun af minni hálfu, 4. október 1990. I
seinna bréfinu lýsir forstöðumaður skjalasafns háskólans því yfir að hann geti
ekki, þrátt fyrir mikla leit, staðfest að Jóhann Jónsson hafi verið nemandi við
háskólann á árunum 1921-1932.