Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Side 86

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Side 86
hafa það í Biblíunni: „Heill þeim er þrífur ungböm þín og slær þeim niður við stein.“' Ahrifasaga þessa sálms er mikil og merkileg. I þessari grein verður hugað nokkuð að henni. Flokkur (,,Gattung“) Sálmur 137 er einstakur meðal sálma Saltarans. Honum verður ekki auð- veldlega skipað í neinn hinna venjubundnu flokka (Gattungen) sálmanna1 2 samkvæmt greiningakerfi þvi sem hefur verið ríkjandi í biblíufræðunum frá því á dögum Hermanns Gunkel (1862-1932). Eðlilegt er að spurt sé um þennan sálm, eins og aðra sálma, hvort rætur hans liggi í helgihaldinu, eins og raun virðist um svo fjölmarga sálma. H-J. Kraus telur sálminn endurspegla einhvers konar guðsþjónustu í formi harmagráts.3 Nefna má Oesterley sem fulltrúa mikils meirihluta fræðimanna sem telja það vafasamt.4 Sjálfur hef ég nýverið, eftir rækilega könnun á sálminum og túlkunarsögu hans, sannfærst um að Kraus hefur á réttu að standa og mun ég hér að aftan halda fram skoðun hans og styðja hana frek- ari rökum. Síðar í gyðinglegri hefð var sálmurinn hafður um hönd á níunda degi Ab- mánaðar í guðsþjónustu þar sem minnst var eyðingar musterisins. Allen tel- ur mögulegt að sálmurinn hafi upphaflega verið notaður við hliðstæða helgiathöfn (sbr. Sak 7:3 og 8:19).5 Það virðist mér bæði trúleg og öfgalaus staðhæfing. Spieckermann segir að form sálmsins verði varla flokkað á annan hátt en sem „bærí‘ þar sem eina ákallið til Drottins í sálminum sé hvorki lof né harmur.6 En bænin er aðeins hluti af sálminum og því hæpið að skilgreina hann þannig. A. Anderson hallast að því að best sé að tala um sálminn sem angurljóð lýðsins sem endi í bölbæn yfir óvininum.7 Þá hefur verið stungið upp á því að kalla sálminn Síonarljóð með öfugum formerkjum. 1 Ekki þarf að koma á óvart að vers þetta er meðal þeirra sem sleppt er úr tíðasöng kaþólsku kirkjunnar. Sjá W.L. Holladay 1993 s. 304-315. 2 L. C. Allen 1983, s. 238 er meðal þeirra sem viðurkenna þetta þó að hann kannist við að í sálminum megi greina bæði skyldleika við angurljóð lýðsins og Síonarljóð. 3 H-J. Kraus, 1993, s. 502. 4 W.O.E. Oesterley, Thc Psalms . Vol. II (London 1939), s. 545. 5 L.C. Allen 1983, s. 239. 6 H. Spieckermann 1989, s. 116. 7 A. A. Anderson 1981, s. 897. 84
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.