Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 128

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 128
J. Clinton McCann, Jr. og James C. Howell, Preaching the Psalms. Nashville: Abingdon Press 2001, 144bls. Á liðnum árum hefur kirkjan enduruppgötvað Saltarann sem uppsprettu innblásturs og tungutaks lofgjörðar til Guðs og í helgihaldinu. Engu að síður er það útbreidd skoðun meðal prédikara að aðrir textar séu betur fallnir til að prédika út frá. Bandarísku fræðimennimir J. Clinton McCann og James C. Howell leggja til atlögu við þetta útbreidda viðhorfa. Þeir halda því fram að sálmar Saltarans leggi prédikaranum upp í hendurn- ar margvíslega möguleika til að tala til safnaðarins í prédikun. Bókin hefur að geyma margvísleg dæmi um notkun sálmanna (áhrifasögu þeirra) um aldir. Mörg dæmanna er mjög skemmtileg og áhugaverð. Þannig er að finna fjölmörg dæmi um hvemig ýmsir af þekktustu guðfræðingum kirkjusög- unnar hafa nýtt sálmana í prédikunum sínum og einnig birta höfundamir nokkrar prédikanir sínar sem dæmi (Út af sálmum 85, 73, 19 og 22). Ein þessara prédikana þótti mér sérstaklega góð, þ.e. prédikunin út frá S1 73 sem fjallaði um vandamál þjáningarinnar. Af kunnum guðfræðingum sem oft prédikuðu út frá sálmunum er nefnd- ur til sögunnar Karl Barth, trúlega þekktasti guðfræðingur 20. aldar. Hann hélt upp á 70 ára afmæli sitt með því að heimsækja fanga í fangelsi einu og prédika fyrir þá. Prédikunartexti hans var S1 34:6. Af öðrum þekktum prest- um er nefndur Martin Luther King, Jr., sem leitaði gjaman á náðir sálmanna. I flestum prédikana hans komu fyrir upphafsorðin úr sálmi 13 (angurljóð): „Hvers lengi?“ Honum fannst, sem kunnugt er, að réttindabar- átta blökkumanna gengi hægt. Þá er hér að finna kunna frásögn af því hvemig sálmamir hjálpuðu sov- éska Gyðingnum og andófsmanninum Anatoly Sharansky að þrauka af þrælkunarvinnu og einangrun í Síberíu um árabil. Hann kallar sig nú Natan Sharansky og er ráðherra í ríkisstjórn ísraels. Einnig eru nefnd dæmi af sumum kirkjufeðranna og túlkun þeirra á ýms- um sálmum, túlkun sem mörgum finnst vafalaust mjög framandi nú á dög- um. Þannig túlkar Ágústínus „kyrru vötnin“ í S1 23 (þ.e. vötnin þar sem ég má næðis njóta) sem skírnina og „borðið“ og „hús Drottins“ táknuðu, að hans mati, kvöldmáltfðina. Hið óhugnanlega niðurlags S1 137, þar sem sá maður er sagður „sæll“ sem slái niður við stein börnum Babýlóníumanna, túlkaði Ágústínus á þann veg að hér væri átt við litlu syndimar sem þyrfti að brjóta á steini áður en þær yrðu að stórum steini. Steinninn var, í huga Ágústinusar, annað hvort kirkjan eða Kristur. 126
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.