Skagfirðingabók - 01.01.1983, Síða 50
SKAGFIRÐINGABÓK
Ef þú vissir ad þad yrdi alvara úr gamni þá ætti Bessi ad
koma í haust til að kynna sér allt. — 1
[1829]
. . . vann Bounaparte seinast, vill nú géfa þeim jafnan rétt
med Protestantiskum, og margir adrir, en margir eru líka
á móti því, og hefir þad ollad margri rimmu í Par-
lamentinu í Vetur. Þó lítur þad svo út nú ad Wellingthon
muni hafa sitt fram, er þad ecki ólíkligt ad hann vilii hafa
fríar hendr heima til þess ad géta rádist í hvad hann vill því
ílla er Enskum vid framgáng Rússa, hvört sem þeir voga
sér ad setia sig á móti þeim eda ecki, Þeim væri best ad
sitia heima þeir hafa ecki nema skömmina af því. Oeyrdir
miklar eru á ymsum stödum í Vesturálfunni, þó ecki í
hinum Nordamerísku frílöndum. Um allt þetta má segia
eins og haft er eptir hönum Séra Jóni sem var á Myrka:
Eitthvad hefir gud í sinni! Páfinn er daudur2 og tók mig
þad sárt, enn eg hrestist mikid vid aptur þegar <eg> feck
vissar fregnir um ad annar væri valin aptur í hans stad. —
Nú hætti eg þessu og hverf til hins. Gód voru bréfin
Yckar og öll falleg og elskuleg. Bréf Bessa bródur míns
var meistarastikki af hönum, hann er . . ,3 ad skrifa kalla
eg, eg meina ad stíla, enn Gvendur skrifar eins og hálær-
dur herra, og betur enn margur þeirra. Olöf skrifar fallega
a sínum aldri dubban sú, þad gengur hreint yfir mig. Þetta
er allt lystafólk. — En ymislegt þókti mér vanta, þad
hellsta var um Uppskéruna þína í haust ed var, þad nefnir
engin sál mansins máli alltadeinu eins og ad hún hafi verid
1 Sjá enn frekar, hvað efni þessa bréfs varðar, kaflann „Nokkrar viðbótar
skýringar" hér síðar.
2 Leo XII, dó 10. febr.
3 Olesandi.
48