Skagfirðingabók - 01.01.1983, Page 65
BRÉF BALDVINS EINARSSONAR
mestr hiá ykkr. Allt þetta var mér gledisaga, og vildi eg ad
hún reyndist sönn.
I útlöndum geisar eldr og drepsótt, med eldi meina eg
strídseldinn í Pólen, sem ekki er ennþá endadr, og med
drepsótt meina eg Cholera morhus frá Asíu. Rússar fá öll
adfaung fra Preussen, og med því móti hefir þeim tekist
ad komast yfir Weikselen á landamerkiunum milli Pólen
og Preussen og mun þess nú ekki allángt ad bída ad
bardagi verdi haldinn skamt frá Warschaus múrum. Gud
géfi Pólökkunum sigr! I Frettablödum stendr nú ad
Frakkland og England og Austrríki ætli ad gánga kröptug-
liga ámilli Rússa og Pólskra, en þeim mun ægia ad senda
strídsher inní drepsóttina, þ. e. Cholera morhus löndin,
svoad óvíst er hvad af því muni verda. Ungarar, nabúar
Pólskra hafa talad skorinordt til Austrríkiskeisara og bed-
id hann líta á malefni Pólskra halda menn ad keisaranum
hafi þókt þad eina rádligast ad vægia nokkud til fyrir
áleitun þeirra.
Dom Mígúel í Portúgal ætladi ad beriast vid Ffrakka]
eda réttara ad veria þeim inngaungu í Tajofliótid sem
rennr fram [. . .] borginni Lissabon, en Frakkar urdu
driúgari í skiptum og komustf. . .] [Badst] Mígúel þá
fridar, og held eg hann fái þad, þó illa sé. Petr keisari af
Brasilíu er afsettr, og er hann kominn til Evrópu. Skyldi
nokkud [. . .] þá er þad koma hans.
Cholera morbus er komin upp í Austindium 1817.
[Hún hefir breytt] sig út æ meir og meir, og komst hún til
Moschaur í vetr og dr[ap margt] fólk, þadan komst hún í
vor smátt og smátt vestr og nordr eptir[ . . . ] hún komist
lengst til Archangel, og er þad bísna nordar [. . .]
menn hún muni lædast nordrfyrir hafsbotna og koma
nordan í S[ . . . ] Vestrávid er hún nú komin til Kiönings-
berg, Danzig og Thorn í Preussaríki [og í] sumar til Pesth
63