Skagfirðingabók - 01.01.1983, Síða 128
SKAGFIRÐINGABÓK
þeim hluta, er þiljaður var af lokrekkjunni tilfætis. I þessu húsi
voru tvö trekkgöt gegnum gluggapóstinn.
Næsta stafgólf var ein rúmlengd. I rúmi þar sváfu oftast
unglingar, eftir að börnum fjölgaði og þau stálpuðust. A móti
rúminu var borð. Þar var oft skenkt kaffi, þegar kalt var, og eins
á kvöldin. Var kaffikannan látin standa á glóðarkeri (eða
fýrfati), meðan farið var með kaffið. Þessi glóðarker þóttu
mestu gersemar, og af því að þau munu nú orðin fáséð, ætla ég
að lýsa þeim. Þau voru óvíða til. Glóðarkerin voru ýmist
kringlótt eða sporöskjulöguð, eftir því hvernig könnubotninn
var í lögun. Þau voru um 4—5 þumlungar að hæð með þrem
koparfótum og vírhöldu. Hringurinn eða bolurinn var ýmist úr
leir eða látúni, með allavega laufum gegnskornum, svo loft
kæmist gegnum hann. Þegar kerin voru vel fægð, sýndust þau
skrautleg. Innan í aðalkerinu var önnur askja úr járni (fóður-
járni). Var hún með nægilega mörgum götum, til þess að loft
kæmist að eldkögglum þeim, er í hana voru látnir til þess að láta
hita haldast á könnunni. Yfir öskjunni var svo járnplata með
götum; hún féll innan í ytri hringinn. Með verkfæri þessu mátti
halda kaffi lengi heitu, því ef eldurinn kulnaði um of, voru
sóttir eldkögglar og bætt í öskjuna. Þetta þóttu mikil þægindi,
og konum þótti vænt um verkfærið.
I baðstofudyrastafgólfi voru ekki aðrir innanstokksmunir en
vefstóll þá tíma, er hann var notaður. Inn af þessu stafgólfi í
norðurenda var næst annað jafnstórt með tveim rúmum; yfir
því, sem á móti glugga stóð, var pallur. I þessum rúmum sváfu
piltar, tveir í hvoru. Fyrir innan þetta hús, í nyrzta hluta
baðstofunnar, var trébekkur gluggamegin, meðfram milliþili frá
dyrum að hliðvegg. Undir hliðinni stóð langt borð. Skápur var
innan við það með tveim hillum. Hann gekk inn úr þiljunni
milli þils og veggjar. Pallur var yfir stafnrúmum, eins og áður er
getið. Þar voru látnir upp rokkar, kembulárar [hér illlæsilegt
orð], verkfæri o.fl. Milli vestara stafnrúms og enda hliðarrúms
var borð undir glugga. I stafnrúmum sváfu stúlkur. Rúm það,
126