Skagfirðingabók - 01.01.1983, Síða 148
SKAGFIRÐINGABÓK
Vatnsskarð var lengi ósýkt, enda girt af milli Héraðsvatna og
Blöndu, vestur Vatnsskarðið, en nú í vetur hefir veikin komið
upp fyrir framan þá girðingu á mörgum bæjum.
Annars eru ýmsar sýslur verr farnar en Skagafjarðarsýsla, því
hér er mikil mjólkurframleiðsla og mjólkursamlag, og hross eru
seld í hundraða tali út úr héraðinu, bæði til lífs og slátrunar.
Einn eftirminnilegur atburður skeði hér í sumar, en það var,
er aska Magnúsar Jónssonar frá Fjalli var jarðsett í heimagrafreit
að Hafsteinsstöðum. Er það svo sérstætt, að eg vil fara þar um
nokkrum orðum.
Magnús var fæddur að Hóli í Sæmundarhlíð 17. júlí 1851, og
ólst upp í föðurgarði, þar til hann fór að búa á Fjalli í sömu
sveit. Snemma bar á gáfum hans, og hafði hann ekki lengi búið
þar, er hann gerðist forystumaður um ýms sveitarmál. Hann
var kjörinn í sýslunefndina 1880 og var þar brátt atkvæðamikill
og heilráður. Hann var t. d. þess mjög fýsandi, að sýslan keypti
Hóla í Hjaltadal fyrir skólasetur og sat um skeið í skólanefnd.
Árið 1887, það mikla harðindavor, flutti hann af landi burt til
Vesturheims. En þó hann væri kominn svo langt frá
ættjörðinni, fylgdist hann þó, eins og margir mætir landar þar
vestra, sífellt með öllum málum vorum hér heima og hafði
bréfaskipti við ýmsa menn, þar á meðal þann, er þetta ritar, og
var auðheyrt, hversu hann gladdist af öllu því, er vera mátti til
framgangs æskuhéraði sínu. Meðal annars sendi hann sýslu-
bókasafninu ágæta bókagjöf. Og að síðustu gerði hann þær
ráðstafanir, að hans jarðnesku leifar yrðu fluttar heim til æsku-
stöðvanna.
Petta þótti okkur Skagfirðingum ræktarlegt, og var kosin
nefnd manna til aðstoðar frændum hans, að útför þessi gæti
orðið sem prýðilegust. Fór hún fram 13. september að við-
stöddu um 200 manns. Var tjaldað með sýslutjaldbúðinni, og
stóð þar veizla mikil. Fyrst var guðsþjónusta að Reynistað, og
flutti sr. Helgi Konráðsson þar snjalla ræðu. En við gröfina, og
yfir borðum á eftir, fluttu þeir ræður, sýslumaður, Sigurður
146