Saga - 2009, Side 123
hefðinni og telur Þorvaldur að hún teygi rætur sínar áratugi aftur í tím-
ann. Máli sínu til stuðnings vísar Þorvaldur til skriflegra heimilda
um gamalt bankamisferli, bæði í ritgerð í Skírni eftir Sigurð Nordal pró-
fessor 1924 og í bréfaskipti bræðranna Bjarna og Péturs Benediktssona,
„en misferlið var aldrei dregið fram í dagsljósið“. Þorvaldur segir
aðferðir sjálftökusamfélagsins hafa verið á allra vörum í áratugi. Allir
vita „um lögleysurnar, en enginn gerir neitt“. Hann veltir upp þeirri
spurningu hvort menn hefðu „gætt sín betur við einkavæðingu bank-
anna“ ef hulunni hefði verið svipt af þeirri spillingu sem grasseraði
í íslensku viðskiptalífi meginhluta tuttugustu aldar.29
ef rætur hrunsins birtast öðrum þræði í hundrað ára sögu ís-
lenskrar stjórnmálaspillingar má allt eins varpa fram þeirri spurn-
ingu hvort finna megi eitthvað í rótgróinni sjálfsmynd Íslendinga
sem skýrt geti þá orsakaþætti sem leiddu til hrunsins. Í grein sem ég
skrifaði í Tímarit Máls og menningar geri ég að umræðuefni hversu
mikið orðræða útrásaráranna sækir í hetjubókmenntir miðalda, þar
sem lögð er áhersla á líkamlegt og andlegt atgervi Íslendinga, sem
verða yfirburðaþjóð í huga þeirra sem mæla.30 Líklega má rekja þessa
sögusýn til sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og þjóðernisskilningsins
sem birtist í ljóðlist rómantísku skáldanna og útrásarskálda íslenskrar
nýrómantíkur sem upphófu ofurmennið í ljóðum sínum. einnig má
nefna sögulegar skáldsögur Gunnars Gunnarssonar frá árunum milli
heimsstyrjalda og Íslenska menningu Sigurðar Nordal sem „hafði mikil
áhrif á sjálfsmynd Íslendinga um miðja 20. öld“ eins og segir í mynda-
texta í bók Guðmundar Magnússonar.31
vogun vinnur … 123
29 Þorvaldur Gylfason, „Skrifleg geymd“, bls. 26. Þorvaldi er svarað af hörku í
Staksteinum Morgunblaðsins 11. október 2009. Sjá „en faglegt“, bls. 10. Í grein
sinni „Ætlar linkindin aldrei að líða hjá?“ rekur Þorvaldur Gylfason ræturnar aftur
til ársins 1936 þegar „Ólafur Thors, forstjóri kveldúlfs og formaður Sjálf stæðis -
flokksins, og Jónas Jónsson frá Hriflu, formaður Framsóknarflokksins, tóku sér
sæti hlið við hlið í bankaráði Landsbankans. … Þarna var að því er virðist inn-
siglaður grunnurinn að helmingaskiptum tveggja helztu flokka landsins“. Þor -
valdur Gylfason, „Ætlar linkindin aldrei að líða hjá?“, Skírnir 182 (haust 2008),
bls. 490. Sjálftökusamfélagið er einnig greiningarefni Rogers Boyes, en hann
bendir á hættuna við að selja ríkiseignir í samfélagi þar sem pólitískir hags-
munahópar stýri flestu. Sjá Roger Boyes, Meltdown Iceland, bls. 35–42.
30 Guðni elísson, „Staðleysan Ísland og mýtan um okkur sjálf“, Tímarit Máls og
menningar, 4. hefti 2009. Greinin verður væntanlega komin út um það leyti sem
þessi birtist á prenti.
31 Guðmundur Magnússon, Nýja Ísland, bls. 38. Ég ræði bók Guðmundar ítarlega
í grein minni „Staðleysan Ísland og mýtan um okkur sjálf“.
Saga haust 2009 UMBROT NOTA-1_Saga haust 2004 - NOTA 25.11.2009 12:44 Page 123