Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Qupperneq 8

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Qupperneq 8
P é t u r G u n n a r s s o n 8 TMM 2010 · 4 tesar frá 1927 sem Hið íslenska bókmenntafélag gaf út árið 1973 í Síðustu dögum Sókratesar, né heldur orðræðuna sem Sigurður lék sér að því að semja í anda Sókratesar í spjalli við útvarpshlustendur um Líf og dauða á útmánuðum 1940 (ég las hana í útgáfu AB frá árinu 1966), og náði hápunkti í frásögninni af „Ferðinni sem aldrei var farin“ þar sem heim­ spekikeisarinn Markús Árelíus grípur óvænt inn í líf föðurleysingjans og verðandi auðnuleysingjans Luciusar, og var svo haganlega smíðuð að menn álitu að Sigurður hefði kopí­peistað hana úr fornklassísku verki. Er ekki örugglega verið að lesa hana í efri bekkjum grunnskólans? Þar ætti hún svo sannarlega heima ásamt með Hamskiptum Kafka. En helst og fremst er það Íslensk menning sem gagntók mig og sem ég hef sótt í yfirskriftina á þessu spjalli í dag, svohljóðandi: „Ef ég gæti ekki elskað þessa þjóð, eins og hún var nú og hafði verið á öllum öldum, með kostum hennar og göllum (og það var allt annað en elska gallana sjálfa), fannst mér ég vera ættjarðarlaus, ekkert hafa að verja, engin skilyrði til varna. … Ég varð að spyrja þess alveg hrein­ skilnislega, hvort Íslendingar væru ógæfuþjóð og ógæfa að vera fæddur meðal þeirra.“3 Ég minnist enn tilfinninganna sem þessar línur vöktu með mér þegar ég las þær fyrst, svo óvenjulegt að fræðimaður gerðist jafn persónulegur, legði sjálfan sig svo að segja að veði. Þessi orð koma vitanlega aftur upp í hugann nú þegar þjóðin hefur verið niðurlægð og sett ofan í augliti umheimsins. Við þekkjum svar Sigurðar, hvernig saga þjóðarinnar, málið og bókmenntirnar voru honum næg réttlæting þess að ferðin væri farin. Það var á öldufaldi lokaáfangans í sjálfstæðisbaráttunni þegar lýðveldið hillti uppi innan seilingar. Aftur á móti núna í öldudalnum getur manni fundist að það sé hið öndverða sem sé ríkjandi. Einhvers konar ósjálf­ stæðisbarátta. Þjóðin hefur orðið fyrir áfalli, einn þáttur í þeim óförum var ógrunduð og kjánaleg söguskoðun og því sýnist mörgum lækningin felast í því að afbyggja eða vinda ofan af öllu sem okkur var áður talið til gildis, að henda íslenskri menningu út með baðvatninu. En látum vera þótt einhverjir landar okkar hafi verið og séu enn að verða sér til skammar í útlöndum, samanber þegar landslið Íslands í handbolta keppti á Evrópumóti í Vín síðastliðið sumar og við máttum ítrekað horfa upp á landa með bjánaleg kýrhorn upp úr hausnum æpandi framan í sjónvarpsvélarnar: „We are the Vikings!“ Sem stafar reyndar ekki af of mikilli heldur of lítilli sögu. Enda hvaðan ætti þeim að vera komin sú túlkun, varla úr námsbókum, sögukennsla í grunnskólum leggur allt aðrar áherslur. Og fráleitt úr áhrifamesta miðli samtímans, sjónvarpinu, en í samanlagðri sögu þess sem spannar víst orðið eina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.