Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Side 28

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Side 28
H a u k u r M á r H e l g a s o n 28 TMM 2010 · 4 Þetta virðist óbrigðult einkenni á yfirstétt landsins. Fimm árum áður en Ólafur Ragnar Grímsson skipaði sér í lið með eldfjalli virtist þjóðar­ stolt hans eiga sér traustari grundvöll. Árið 2005 var honum boðið að ávarpa meðlimi Walbrookklúbbsins í London. Yfirskrift erindisins var „Hvernig ná skal árangri í nútímaviðskiptum – lærdómar úr vegferð Íslendinga“6 og er prýðisgott dæmi um þá stemmningu sem var ríkjandi þegar efnahagsuppgangur Íslendinga var í hámarki. Forsetinn sagði að hann hefði nýlega verið „hvattur til að útskýra hvernig og hvers vegna áræðnir íslenskir athafnamenn ná árangri þar sem aðrir hika eða bregðast, að afhjúpa leyndarmálið að baki þeim árangri sem þeir hafa náð“. Hann taldi síðan upp þau þjóðareinkenni sem hann áleit skipta máli fyrir árangur Íslendinga: sterkt vinnusiðferði bænda og sjómanna, tilhneigingu til að beina athyglinni að niðurstöðunum fremur en ferlinu […] að spyrja fremur hvenær en hvernig hægt sé að gera hlutina. Í þriðja lagi taka Íslendingar áhættu. Þeir eru áræðnir og árásargjarnir […] Í fjórða lagi er engu skrifræði fyrir að fara á Íslandi og þar umbera menn ekki skrifræðislegar aðferðir, o.s.frv. Listinn er meira og minna í anda Clints Eastwood í doll­ aramyndunum sem aðeins mælir þarft eða þegir en lætur fyrst og fremst verkin tala. Ólafur er sannfærður um að aðrir geti lært af íslensku athafnamönnunum og lýsir árangurssögu þeirra sem „athyglisverðum sjónarhóli þaðan sem skoða má gildi hefðbundinna viðskiptafræða, þeirra kenninga og þeirrar starfsemi sem stórfyrirtæki og viðskipta­ skólar beggja vegna Atlantshafsins hafa stundað og fylgt“. Hann endar síðan á hálfgerðri hótun: „You ain’t seen nothing yet“. Auðvitað mætti tala hér um ofdramb, en það sem vekur athygli mína er sú ranghugmynd sem virðist mega greina í ræðu forsetans, þögulli iðju hetjanna sem þar er lýst og stoltinu yfir því að geta, að því er virtist, nánast gert kraftaverk. Þetta var útbreitt viðhorf. Í grein í The Observer í maí 2008 er vitnað í orð Dags B. Eggertssonar, 35 ára Samfylkingar­ manns sem hafði komist skjótt til metorða: „Einhver kallaði það býflugnahagfræði – út frá vísindunum, loftaflfræðinni, er ekki hægt að átta sig á því hvernig býflugan flýgur, en hún gerir það, og það alveg prýðilega.“7 Í Walbrookræðu sinni lýsti Ólafur Ragnar Grímsson for­ seti sömu undrun og aðdáun: „Fólk lítur jafnvel á okkur sem heillandi meinlausa furðufugla og því eru allar gáttir galopnaðar þegar okkur ber að garði.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.