Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 45
H r u n v i t s m u n a
TMM 2010 · 4 45
en fór sér hægt og krónan varð allt of sterk strax árið 2006; íslensku bankarnir
komu til aðstoðar íslenskum fjárfestum þegar erlendir bankar kröfðust aukinna
trygginga eftir að verð hlutabréfa á Íslandi lækkar 2007–2008; kerfisáhættan
magnast og bankarnir áttu erfitt um vik 2007–2008 vegna skuldbindinga og
áhættu sem tekin var fyrir 2006; Seðlabankinn taldi sig skorta úrræði – Fjár
málaeftirlitið einnig; tortryggni ríkti milli stjórnenda Seðlabanka Íslands og
ráðherra í ríkisstjórn; ríkisstjórn ræddi lítið stöðu bankanna eftir að lausafjár
kreppan hófst 2007; tillögur viðbragðshóps um nauðsyn viðbúnaðar fengu ekki
afgreiðslu og allt gekk út á að halda veikburða fjármálakerfinu gangandi.
Af þessu broti úr niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis má sjá
að margþættir kraftar voru að verki, ólíkir aðilar ýmist viljandi eða
óviljandi, meðvitað eða ómeðvitað, voru þátttakendur og gerendur.
Svo virðist sem allt hafi brugðist sem brugðist gat. Menn hröktust frá
einni varnarstöð til annarrar og fjarlægðust sífellt þann daglega praxís
sem þeir þekktu best. Engu að síður er erfitt er ímynda sér að nokkur
þeirra sem að verki komu hafi í rauntíma gert sér í hugarlund þá miklu
katastrófu sem þeir voru þátttakendur í þó svo þeir hafi skynjað með
skýrum hætti alvöru þess vanda sem að þeim sneri. Það var a.m.k.
upplifun mín af samstarfsmönnum mínum. Heildarmynd vandans var
hins vegar ofvaxin nokkrum manni. Þess vegna tekur rannsóknarnefnd
Alþingis í raun undir með þeim ágætu íslensku félags og hug
vísindamönnum sem fyrir birtingu skýrslunnar drógu fram fjölmarga
þætti í háttum, venjum og hugsunarhætti okkar tíma sem skýringu á
hruni íslenska fjármálakerfisins. Hér skal ekki reynt að draga úr því að
frumorsakar hruns banka er alltaf að leita innan bankanna þó að víðar
megi leita fanga við að skýra þær ákvarðanir sem til hrunsins leiddu.
Engu að síður er mikilvægt að halda því til haga að rannsóknarnefnd
Alþingis dregur ekki fram orsakasamhengi á milli þeirra einstöku
atriða sem fundið er að og þeirrar staðreyndar að bankakerfið hrundi14
og þá er heldur enginn samanburður í skýrslu nefndarinnar við stöðu,
aðdraganda, athafnir embættis og bankamanna eða þróun á öðrum
fjármálamörkuðum á Vesturlöndum15 en stærstu jafnt sem minnstu
fjármálakerfi heims römbuðu á barmi hruns í september og október
2008 en víðast hvar – öfugt við Ísland – voru til úrræði til að forða þeim
frá falli.16
Í köflunum sem hér fylgja verður gerð tilraun til að lýsa hugsunarhætti
og atferli sem telja má líklegt að hafi átt hlut að máli við hrun fjár
málakerfisins.