Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 68

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 68
H e i m i r Pá l s s o n 68 TMM 2010 · 4 líka mikilvægt að taka fram að ég nota eysseyjuformið fremur en hina strangvísindalegu aðferð, sem gjarna kafnar í mannviti eins og Kvasir, einfaldlega vegna þess að svo margt hlýtur ávallt að vera á tilgátustiginu. Þegar ég minnist á að eitt og annað geti nú hafa gerst í munnlegri geymd, fæ ég oft að heyra að um hana viti ég ekkert og geti aldrei sannað nokkuð. Það er laukrétt. Það eina sem ég veit er að munnlega hefðin hlýtur að hafa verið til. Annars hefðu flest þau fræði sem við eigum í miðaldaritum horfið út í buskann. Oft hefur verið nefnt að engin gat ort kvæði á þrett­ ándu öld um Atla Húnakonung nema hún hefði á að byggja svo sem 800 ára munnlega hefð. Flóknara er það nú ekki. Hér á eftir verður líka rætt um persónur sem sögur hafa áreiðanlega gengið um lengi. Gunnlaðarsaga Hávamála Tvær, og þó fremur þrjár, miðaldaheimildir greina okkur frá jötuns­ dótturinni Gunnlöðu. Fyrst er að telja Hávamál, sem sennilega er elsta heimildin þótt ekki sé þekkt á eldra bókfelli en Konungsbók eddukvæða frá því um 1275. Hinar tvær heimildirnar eru ólíkar gerðir Snorra­Eddu, annars vegar sú sem best er þekkt og gjarna kennd við Codex regius, Konungsbók (Gks 2367), og er nokkurn veginn alveg eins og Ormsbók og Trektarbók, en hins vegar er sú gerð sem varðveitt er í Uppsala­Eddu, handritinu DG 11 4to í háskólabókasafninu Carolina Rediviva í Upp­ sölum. Nauðsynlegt er, samhengis og rökstuðnings vegna, að gera nokkra grein fyrir þessum sagnagerðum. Verður þá byrjað á Hávamálum.3 Þau erindi Hávamála sem beinlínis fjalla um Gunnlöðu og Suttung eru reyndar bara fimm (útg. Gísla Sigurðssonar 1998, bls. 40–41; um skýringar fylgi ég Gísla að langmestu leyti): 104 Inn aldna jötun eg sótta, nú em eg aftur um kominn, fátt gat eg þegjandi þar. Mörgum orðum mælta eg í minn frama í Suttungs sölum. 105 Gunnlöð mér um gaf gullnum stóli á drykk ins dýra mjaðar. Ill iðgjöld lét eg hana eftir hafa Mælandinn staðsetur sig: Hann er kom­ inn aftur úr heimsókn þar sem hann fékk að reyna sig í þekkingu og frásögn. Svár merkir ugglaust ,þungur, erfiður‘; sefi merkir sennilega ,ást‘ í þessu dæmi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.