Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Síða 89

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Síða 89
L e s i ð í s k u g g a h r u n s i n s TMM 2010 · 4 89 út á síðasta ári taka sér allar meira og minna stöðu með konum sem minna mega sín í sögunni. Bjarni Harðarson fjalla um formæður sínar og ættingja í Nú skal dansa, konur sem eiga það sameiginlegt að vera leiksoppar misjafnra karla og samfélags sem tekur sjaldnast tillit til óska þeirra eða drauma. Það er kannski skilgreiningaratriði hvort skáldsaga Hlínar Agnars­ dóttur, Blómin frá Maó telst sögulega skáldsaga þar sem hún teygir sig inn í nútímann og byggir að einhverju leyti á minningum höfundar sjálfs um tíma róttækni og maóisma á áttunda áratugnum. En hún hefur það einkenni sögulegrar skáldsögu að hún ætlar sér að varpa ljósi á hugarfar tímabils og tekst það mjög vel. Saga norðanstúlkunnar sem lendir í slagtogi við maóistaklíku þegar hún kemur til Reykjavíkur til að læra félagsráðgjöf er ísmeygileg og skörp. Hún dregur upp sannfærandi mynd af tímabili sem hefur hlotið nokkuð misjöfn eftirmæli. Sagan er vissulega gagnrýnin, ekki síst á karlrembuna sem virðist hafa verið innbyggð í byltingarsinnaðar sellur og smáflokka á tímabilinu, en þessi gagnrýni er beiskjulaus og yfir allri frásögninni er kankvís hlýja. Síðasta sögulega skáldsagan sem hér verður nefnd dregur einnig athyglina að konu, einni hinna ósýnilegu kvenna sögunnar. Þegar kóngur kom eftir Helga Ingólfsson státar af fjölbreyttu persónugalleríi, en meðal þeirra eftirminnilegri, og sú sem kemur atburðarásinni af stað er forsmáða alþýðustúlkan Sigríður. Fyrir þá sem, eins og undirritaður, hafa gaman af sögulegum búninga drömum er Þegar kóngur kom hin besta skemmtun. Sérstaklega framan af, meðan dregin er upp mynd af Reykjavík og Reykvíkingum nítjándu aldar. Hér eru ýmsir gamlir kunningjar úr söguritum og ævisögum undanfarinna ára og áratuga, meðal eftirminnilegra persóna er svolítið sjálfumglaður og hégómlegur Matthías Jochumsson. Jónassen landlæknir, önnur aðalpersóna sögunnar er sömuleiðis skemmtilega samsettur, strangvísindalegur í aðra röndina og vel menntaður á sinna tíma vísu, en jafnframt trúgjarn og tilbúinn að leggja trú á alls konar hindurvitni. Þegar kóngur kom er líka glæpasaga af því tagi sem ekki hefur farið mikið fyrir í því flóði glæpasagna sem dunið hefur yfir íslenska lesendur síðasta áratug. Sögulegar glæpasögur eru velþekktar úti í heimi, Róm til forna og evrópskar miðaldir eiga þar sína fulltrúa og nú hefur nítjánda öldin á Íslandi bæst við.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.