Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 92

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 92
J ó n Yn g v i J ó h a n n s s o n 92 TMM 2010 · 4 Að sumu leyti staðfestir sagan líka þessa fordóma og aðalpersónan Karl Ástuson er að mörgu leyti óttaleg klisja. Hann er alinn upp í eftir­ læti af sérlundaðri móður og hefur helgað líf sitt því að verða góður elsk­ hugi, án þess að bindast nokkurn tíma ástmeyjum sínum, enda getur engin þeirra komið í stað æskuástarinnar. En þetta þarf ekki að skipta öllu máli, það er ekki nauðsynlegt að lesa Góða elskhugann í ljósi fyrri verka Steinunnar. Og bókmenntir snúast þegar allt kemur til alls minnst um innihald og viðfangsefni. Stíll Steinunnar og hárfín beiting íróníu verður sífellt þroskaðri og gerir henni kleift að spenna bogann sífellt hærra í lýsingum sínum á ástinni og vangaveltum um hana. Bækur þeirra Þórarins og Steinunnar vekja aftur upp spurningu sem ég hef stundum velt fyrir mér og snertir stöðu höfunda í jafn litlu bókmenntakerfi og því íslenska. Getur verið að við gerum meiri kröfu til íslenskra höfunda um sífellda endurnýjun og frumleika en algengt er annars staðar? Góði elskhuginn og Alltaf sama sagan eru dæmigerðar fyrir höfunda sína. Sem er gott. Kannast ekki flestir við að leita þess hjá uppáhaldshöfundum sínum sem þeir þekkja? Samt er það svo að við krefjumst þess sífellt að höfundar komi okkur á óvart geri eitthvað glænýtt. Ég er ekki viss um að við gerum alltaf sömu kröfu til erlendra uppáhaldshöfunda. Við viljum að skáldsaga eftir Murakami líkist skáldsögu eftir Murakami, við viljum finna aftur það sem upphaflega dró okkur að höfundunum. Ímyndaðar borgir Það er kannski banalt að benda á það, en ennþá höfum við ekki séð bók, hvorki fræðirit né skáldsögu, eftir íslenska konu sem fjallar beinlínis um efnahagshrunið. Áður en ég vík að skáldsögum um hrunið langar mig þó að minnast á þrjár skáldsögur eftir konur sem eiga það sameiginlegt að falla utan þeirra kvía sem hér hafa verið settar upp til að fjalla um skáldsögur síðasta árs, sögur sem ekki fjalla um tengsl Íslands og útlanda, ekki um kreppuna, og eru sannarlega ekki endurtekning eins eða neins. Nýjasta bók Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur Heim til míns hjarta smýgur ekki bara undan mínum heimabundnu flokkunum. Hún er ekki lík neinu í flóru íslenskra bókmennta, hvort sem litið er til fræða eða skáldskapar. Undirtitillinn er „Ilmskýrsla um árstíð á hæli“ og strax í titlunum er lesandinn sendur í allar áttir í leit að tilvísunum og texta­ tengslum, það verður strax einhver árekstur á milli hins klíníska og raunvísindalega orðs ‘skýrsla’ annars vegar og ‘skáldskapar’ hins vegar og eitthvað er Arthur Rimbaud að þvælast í þessum undirtitli líka.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.