Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 99

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 99
TMM 2010 · 4 99 Á d r e p a Gunnar Karlsson Til varnar lýðræðinu Á fundi í Háskólabíó 24. nóvember 2008 var baulað á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þegar hún lét í ljós efa um að hávær hópur fundargesta, sem voru sagðir um hálft annað þúsund samtals, gæti talað í nafni þjóðarinnar.1 Stuttu síðar barst þetta í tal á milli mín og kunningja míns, og ég sagði eitthvað á þá leið að þetta væri auðvitað alveg rétt hjá henni, þessi hópur hefði ekki farið með neitt umboð fyrir þjóðina. Hann viðurkenndi að það væri rétt en sagði um leið að samt hefði verið óráðlegt af Ingibjörgu Sólrúnu að segja það á þessum stað og stundu. Með því hafði þessi grandvari kunningi minn gengist undir það að háværum hópum fólks ætti að líðast að tala í nafni þjóðarinnar aðeins ef þeir bæru eitthvert málefni svo mikið fyrir brjósti að þeir nenntu að hreyfa sig út úr húsi vegna þess. Við höfum nú orðið vitni að svipaðri afstöðu til háværra mótmæla haustið 2010. Hópur fólks, sem fjölmiðlar sögðu fyrst vera fjögur þúsund, síðan sex, átta og jafnvel tíu þúsund, kom saman á Austurvelli og lét bylja hátt í tómum tunnum meðan forsætisráðherra flutti stefnuræðu á Alþingi, og fjölmiðlar kölluðu hópinn þjóðina. „Þjóðin er reið“ var heiti á útvarpsþætti sem átti, skildist mér, að fjalla um mótmæli hans. En, jafnvel þótt við gerum ráð fyrir að þarna hafi tíu þúsund reykvískir kjósendur verið á Austurvelli og sýnt reiði sína, þá voru meira en átta sinnum fleiri kjósendur borgarinnar ekki þar og sýndu enga reiði. Það er fjarri mér að gera lítið úr gremju þess fólks sem baulaði á fundinum í Háskólabíó fyrir tveimur árum eða barði tunnur á Austurvelli nú í haust. Margt af því hefur orðið fyrir grimmum fjárhagslegum blekkingum; öðrum hlýtur að sárna sú niðurlæging sem samfélag okkar allra hefur mátt þola fyrir mistök stjórnmálamanna og ósvífni fjárglæframanna. Það er von að fólki renni í skap. En fólkið sem rennur svo í skap að það mótmæli á almannafæri er samt ekki þjóðin. Áður fyrr á árum var ég oft í hópi þúsunda sem komu saman í miðbæ Reykjavíkur í lok Keflavíkurgangna og krafðist brottfarar bandaríska hersins. Við vorum sannfærð um málstað okkar (sem síðar hefur reynst að minnsta kosti eins sannur og við héldum), en við vissum að við vorum ekki þjóðin, hvað þá að við værum kölluð það í Ríkisútvarpinu eða Morgunblaðinu. Hversu góður sem málstaður háværra minnihlutahópa kann að vera ber það í sér ör­ör­örlítið kím fasisma þegar þeir fara að komast upp með að láta kalla sig þjóðina.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.