Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Síða 107

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Síða 107
TMM 2010 · 4 107 D ó m a r u m b æ k u r Úlfar Bragason Snorri veginn Óskar Guðmundsson: Snorri, ævisaga Snorra Sturlusonar 1179–1241. JPV­útgáfa, 2009. Til er á erlendu máli orð sem heitir souverain, súveren, – franskt upphaflega. Þetta orð er haft um keisara og páfa, en ekki vanalega konúnga. Maður sem lýst er með þessu orði, hefur vald til að segja hverjum sem er fyrir verkum, einnig konúngum; en tekur ekki við skipun frá neinum. Einginn nema maður af þessari gráðu skrifar bók einsog Ólafs sögu ens helga [Snorri – átta alda minning (1979): 22]. Svo komst Halldór Laxness að orði í ræðu sem hann hélt á Snorrahátíð í hátíðarsal Háskóla Íslands 22. júní 1979 þegar þess var minnst að átta aldir voru liðnar frá fæðingu Snorra Sturlusonar. Það vald og sú helgi sem gefin var Ólafi Noregskonungi í Heimskringlu er í orðum Laxness yfirfærð á Snorra sjálfan – sem menn hafa komið sér saman um að sé höfundur verksins. Ævisaga Óskars Guðmundssonar um Snorra er mikið rit, 528 bls. þegar með eru taldar allar skrár: tilvísanir, heimildir og mynda­ og nafnaskrár sem eru upp á tæpar 70 síður. Að vísu er letur stórt og í megintexta er talsvert af myndum til skýringa og skrauts. Jafnframt er þar mikið um ættrakningar til skýringa. Í formála gerir höfundur nokkra grein fyrir verki sínu. Þar segir m.a.: Ævi Snorra er spennandi af mörgum ástæðum. Enginn annar miðaldamaður er talinn hafa tekið saman jafn mikið efni úr heimi bókmennta, sagnfræði og menn­ ingararfs. Enginn norrænn maður kemst nálægt honum að víðfeðmi – og enginn samtímamaður hans hefur skilað eftirkomendum eftir jafn gildum sjóði til varð­ veislu og úrvinnslu [9]. Óskar getur þess einnig með réttu að enginn hafi skrifað svo mikið rit um ævi Snorra Sturlusonar og hann þótt margir hafi skrifað æviágrip hans. Enda bendir hann á að heimildir séu takmarkaðar. En hann ætlar sér ekki síður eða jafnvel frekar að skrifa um stjórnmálamanninn Snorra, sem hann telur að hafi sett mikinn svip á þrettándu öldina, en bókmenntamanninn. Óskar dregur heldur ekki fjöður yfir að verk hans byggist á gömlum og nýjum rannsóknum á Sturlungaöld, ævi Snorra og verkum. Enda bera tilvísanir til heimilda og mikil heimildaskrá bókarinnar vitni um að víða er leitað fanga. Ég saknaði þar þó þegar tveggja ágætra og yfirlitsgóðra rita: Snorri Sturluson eftir Marlene
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.