Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 130

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 130
D ó m a r u m b æ k u r 130 TMM 2010 · 4 Titillinn, Bankster, er augljóslega dregin af enska orðinu „gangster“, það er að segja glæpamaður og vísar á íronískan hátt til þess álits sem bankamenn hafa notið í þjóðfélaginu í kjölfar hrunsins og sjálfsmyndar þeirra. Titillinn gefur fyrirheit um að hér sé á ferðinni uppgjör bankamanns sem lék stóra rullu í því sjónarspili sem uppgangur og fall íslensku bankanna var. Því er þó ekki beinlínis að heilsa, nema að því leyti að Markús, aðalpersóna og sögumaður skáldsögunnar, er þátttakandi í taflinu. En hann er miklu frekar peð í þessu tafli – fórnarlamb í þessum hamförum – og þegar hann hefur misst vinnuna í bankanum og stendur frammi fyrir gjörbreyttri stöðu, þarf hann að endur­ meta líf sitt. Það endurmat snýst um það hvort hann hafi valið sér rétta braut hvað menntun og starf varðar, en beinist þó ekki síður að Hörpu, sambýlis­ konu hans sem einnig starfar í banka og missir vinnuna. Formálinn Bókin er tvískipt. Hún hefst á formála sem er uppskrift símtala Markúsar við foreldra sína, einkum föðurinn, rétt fyrir hrunið. Í framhaldinu hefst svo meginhluti frásagnarinnar í formi dagbókar sem Markús heldur í atvinnuleysi sínu í kjölfar hrunsins. Símtölin uppskrifuðu einkennast af spurningum föður Markúsar um „ástandið“ í aðdraganda hrunsins. Þetta er ansi snjöll og kröftug byrjun á bókinni, því með þessum hversdagslegu samtölum kemst ýmislegt forvitnilegt til skila, bæði um bakgrunn Markúsar og viðhorf hans fyrir sjálft hrunið. Á afar lágstemmdan hátt er til dæmis fjallað um þær blekkingar sem haldið var að almenningi fram í rauðan dauða bankanna í kjölfar „guð blessi Ísland“­ ávarps Geirs Haarde forsætisráðherra þann 6. október 2008. Foreldrar Markúsar búa í litlu sjávarþorpi út á landi. Þau eru eins og hverjir aðrir almennir borgarar á Íslandi sem skynja að eitthvað er ekki eins og það á að vera en hafa engar forsendur til að átta sig fyllilega á því. Spurningar föður­ ins og svör Markúsar leiða einnig í ljós hve lítið starfsmenn á borð við hann vissu. En svörin leiða líka í ljós hve bjartsýnin og trúin á hið ofvaxna banka­ kerfi var óbilandi. Grípum niður í samtal þeirra feðga föstudaginn 3. október 2008, fáum dögum eftir að ríkið yfirtók Glitni: – Hefurðu áhyggjur? – Ég er ekkert að drepast úr þeim. Landsbankinn og Glitnir eru svo ólík fyrirtæki, bæði bankar en ótrúlega ólík fyrirtæki. – Við skulum vona það. – Trúum því. Það er bara þannig. (bls. viii­ix) Þetta stutta brot úr samtali feðganna lætur ekki mikið yfir sér en það kallast á við eitthvað stærra og meira sem mann rámar í að hafa heyrt óma í fjölmiðlum þessa daga. Reynt var að telja fólk á að trúa því skilyrðislaust að allt myndi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.