Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 140

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 140
D ó m a r u m b æ k u r 140 TMM 2010 · 4 eigin fjötrum“. Síðan „umskipar“ hann „landakortum“, sleppir „skuggunum undan fólkinu“ og kveikir „þrotlausa frelsisþrá / í brjóstunum“. Og þetta er aðeins byrjunin: „veldi mitt og orðanna aðeins á fyrsta degi“. Ljóðmælandi hefur hreinlega tekið sér guðlegt vald, eða gefið ljóðum sínum guðlegt vald, til að umskipa heiminum öllum, jafnt hinu ytra byrði sem innra lífi. Allt fer á skrið, enda felur umskipun landakortanna í sér að þau „séu ekki eins afdrátt­ arlaus / í trú sinni á línur“. Vissulega er ekki sami slátturinn á ljóðmælanda í öllum ljóðum bókarinnar. Í „Langsetur í herbergi“ hefur ljóðmælandi setið mánuðum saman einn í her­ bergi sem myrkvast smám saman, en þó gægist lítill geisli inn sem ljóðmælanda gæti reynst „um megn / að slökkva / þrátt fyrir myrkrið í mér“. Þessi hógværa mynd af myrkri og einsemd býr yfir bæði kyrrð og von, en eitt einkenni ljóðanna er einmitt hversu vítt tilfinningasvið þau spanna, jafnvel eitt og sama ljóðið. Sjálfsháð tekst á við flótta í ljóðinu um óskirnar þrjár, en þar hefur ljóð­ mælandi galdrað skógarguð upp úr flösku. Guðinn gerir stólpagrín að óskum um auðmýkt, einlægt hjarta og grimmd sem veldur því að hann er lokaður aftur ofan í flöskunni. Auðmýktin er hræsni, einlæga hjartað er ómögulegt því það er kalið af skáldskap og ósk um grimmd er svarað með orðunum: „æ, smáskitna mannssál, manngrey / þú veist ekki hvers þú óskar þér / né hvers þú ert megnugur og hvers ekki“. Samt á ljóðmælandi eina ósk eftir í lokin, sem lesandinn veit að er ómögulegt, því ljóðið heitir „Þrjár óskir“ og allir vita að yfirnáttúrulegar verur bjóða aðeins upp á þann fjölda óska. Og lesandinn er mikilvægur hluti ljóða Hermanns, því eitt einkenni ljóð­ anna er að þau eru mörg hver skrifuð í annarri persónu, sem ávarp. Gunn­ þórunn Guðmundsdóttir álítur þetta ávarp aggressíft, sem það vissulega er, og bendir á að það sé ekki alltaf ljóst hver sé ávarpaður, lesandi, ljóðmælandi sjálfur eða tilteknar persónur.1 Í einu ljóðinu er til dæmis talað til Buffalo Bills og nokkur eru ástarljóð, en slík eru einmitt oftlega sett fram í annarri persónu sem ávarp, án þess þó að vera endilega aggressíf. Dæmi um slíkt er ljóðið ævintýralega „Písa“, en þar rifjar ljóðmælandi upp bernskuminningar með ástvinu sinni, sálir þeirra renna saman og ástin hefur ekkert dalað „nú þegar innrásarherir sitja um leikfangalandið“. Líkt og í leikhúsi hefur ávarp til les­ andans þau áhrif að rjúfa ,fjórða vegginn‘, bilið sem er milli höfundar og les­ anda, eða kannski öllu heldur ljóðmælanda og innbyggðs lesanda. Lesandi verður meðvitaðri um lestur sinn, hann er ekki lengur hlutlaus áhorfandi eða neytandi textans heldur þátttakandi, jafnvel meðsekur, í það minnsta með­ virkur. Það ruglar hann svo enn í ríminu þegar dynja á honum margvísleg ávörpin eða hvað á lesandi að halda þegar hann er ávarpaður í einu ljóði sem Buffalo Bill, í öðru sem ástvina og í enn öðru sem gestur á salerni á Schiphol­ flugvelli? Og þannig má áfram telja. Lesandi verður þannig óviss um eigin stöðu og finnur í sífellu fyrir höfundi, fær jafnvel á tilfinninguna að þessi höfundur sé að stríða svolítið, leika (bók­ menntafræðilega) leiki. En hver er þá höfundurinn? Hermann Stefánsson, bókmenntafræðingur með meiru. Og hver er hann? Hann er meðal annars
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.