Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Side 39

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Side 39
S u n n a n v i n d u r TMM 2018 · 4 39 hlýja öxl hennar. Mamma og pabbi hafa eflaust borið okkur inn í her- bergi skömmu síðar því morguninn eftir vaknaði ég í mínu eigin rúmi íklæddur náttfötum. Það fyrsta sem ég tók eftir var að Úlfhildur var ekki í herberginu. Ég þræddi dimmt húsið í leit að henni en fann hana hvergi. Að lokum opnaði ég útidyrnar og við mér blasti sjón sem ég hafði fram til þessa aðeins séð í bíómyndum. Stéttin og gatan voru þakin þykku lagi af nýföllnum snjó sem lá yfir öllu rétt eins og skýin hefðu ákveðið að fá sér blund í götunni okkar. Snjórinn var óhreyfður fyrir utan par af fót- sporum sem lágu frá útidyrahurðinni í átt að garðinum. Ég klæddi mig í skó og úlpu, fór út og fylgdi sporunum. Þau lágu í gegnum garðinn, yfir runnana og hraðbrautina í átt að fjörunni. Það birti til eftir því sem ég nálgaðist sjóinn og ég tók eftir því að í kringum mig var fjöldi fólks á leiðinni í sömu átt og ég. Risastór maður, grár á hörund með brotið og hrjúft andlit eins og grjót, gekk fram hjá mér og á eftir honum fylgdi hópur stórbeinóttra og ófrýnilegra barna. Við hlið mér gengu nokkrar hávaxnar og ljóshærðar konur, íklæddar kyrtlum sem voru svo hvítir að frá þeim virtist stafa einhvers konar yfirnáttúrulegri birtu. Öll virtust þau vera á leiðinni niður að fjöru en ekkert þeirra virti mig viðlits. Þegar ég var kominn að klettunum sá ég hvert þau stefndu. Í flæðarmálinu lá stærðarinnar seglskip. Skipsskrokkurinn var úr dökkum viði og framan á skipinu tróndi rautt drekahöfuð með gapandi gin. Fólkið streymdi í skipið og í þvögunni sem hafði myndast fyrir framan það sá ég glitta í rauðan og úfinn koll sem ég kannaðist við. Ég kallaði nafnið hennar og hún sneri sér við. Hún brosti og veifaði til mín og ég var við það að taka á rás eftir henni þegar ég fann að eitthvað hélt aftur af mér. Stór og fúlskeggjaður maður, klæddur loðfeldi og vopnaður stærðarinnar spjóti ýtti Úlfhildi á undan sér og hún hvarf inn í þvöguna. Mig langaði að hlaupa á eftir henni en ég fann að ef ég myndi gera það yrði ekki aftur snúið. Fólkið hélt áfram að streyma í skipið og þegar allir voru komnir um borð lagði það úr höfn og sigldi hægt út víkina. Mér fannst ég sjá litla hönd veifa mér frá borðstokknum en það gæti hafa verið ímyndun. Ég sat á klettunum og horfði á skipið fjarlægjast þar til það varð að örlitlum bletti á sjóndeildarhringnum. Þegar ég kom aftur heim voru pabbi og mamma ennþá sofandi. Ég leit á klukkuna og sá að hún var ekki orðin átta. Ég fór inn í herbergið mitt og sá að það lá eitthvað á dýnunni sem Úlfhildur hafði sofið á. Ég beygði mig niður og tók upp hlutinn. Þetta var krossinn hennar Úlfhildar. Ég lagðist í rúmið og handlék hann. Hann var með fjórum jafnlöngum örmum og ferningi í miðjunni, haganlega vafinn úr löngum sprekum. TMM_4_2018.indd 39 6.11.2018 10:22
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.