Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Page 53

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Page 53
„ Þa ð a ð s k r i fa b æ k u r TMM 2018 · 4 53 vona að fólk treysti mér, ég var allavega að reyna að gera heiðarlegt listaverk – ég er ekki bara að trolla! Ég óttast samt stundum að tónninn sé sleginn – krafturinn í ákveðnum ásakandi fingrum er mikill og fólki oft furðu mikil- vægt að niðursjóða listaverk í einhver einföld sándbæt, með eða á móti. Það er samt ekki hægt að neita því að spurningin vaknar, hún gerði það í það minnsta hjá mér, um hver hefur réttinn til að tala. Ég gerði eigin- lega strax ráð fyrir að það væri hluti af pælingunni. Þú talar um þetta á nokkrum stöðum í bókinni, til dæmis þegar Hans Blær, sem þá hét Ilmur, kemur út sem intersex í útvarpinu og gerir þá alla kjaftstopp. Hán hefur allt í einu öðlast nýjan rétt til þess að tala. Hver er þín afstaða til þessa með tilliti til þessarar bókar? Einn af síðri fylgifiskum þess sem er kallað ídentítetspólitík er ákveðin tilhneiging til þess að líta fyrst til þess hver segir eitthvað og láta það síðan vega furðu þungt þegar lagt er mat á það sem viðkomandi segir. Við stillum tortryggninemana og viðkvæmni þeirra eftir þessu. Þetta er slæm pólitík af ótal ástæðum. Meðal annars vegna þess að það gefur kapítalinu færi á að hvítþvo sjálft sig með líberalískum ráðningarferlum og gerir hinum ríku og frægu kleift að vera í kastljósinu líka þegar það kemur að því að vera kúgaður og undirokaður. En líka vegna þess að þetta getur hæglega snúist í höndunum á þeim sem stunda slíka pólitík einsog verður ljóst í kringum fólk einsog Milo Yiannopoulus, sem er samkynhneigður fasisti, giftur svörtum manni, Blaire White, sem er trumpísk transkona, Kent Ekeroth sem er Svíþjóðardemókrati af gyðingaættum og svo framvegis og svo framvegis. Ég á ekki við að það skipti ekki máli hver segir hlutina og frá hvaða sjónarhóli – það litar bókina Uppvöxt Litla-Trés að Forrest Carter, höfundur hennar, hafi verið talsmaður Ku Klux Klan – en það er hætt við að maður missi af mörgu, næstum öllu, ef maður lætur slíkan lestur ramma inn heilu listaverkin. Reynsla annarrar manneskju í öðrum aðstæðum getur aldrei orðið manni fullkomlega skiljanleg og á sama tíma er það miðlun slíkrar reynslu sem er hornsteinn allra frásagnabókmennta. Empatían, samlíðanin. Rithöfundar reyna að búa til sögupersónur sem eru einstakar og ef vel tekst til öðlast þær einhvers konar sjálfstætt líf. Það líf litar svo oft mann sjálfan og manns eigið líf – mér finnst einsog ég hafi í senn fyrir löngu misst stjórn á Hans Blævi og orðið hán, eða hluti hánar, hán hluti af mér. Rithöfundar hafa hins vegar ekki „rétt“ til þess að segja eitt eða neitt eða mæla fyrir hönd eins eða neins – hvorki í krafti listar sinnar, frekju sinnar né djúpstæðra móralskra yfirburða. Ég hef engan „rétt“ til þess að segja „sögu transfólks“ frekar en ég hef rétt til þess að skrifa sögu helfararinnar, um barnadauða eða heim flóttamanna. Ég geri það bara. Það að skrifa bækur er alltaf að einhverju marki siðlaus gjörningur. Og sennilega líka það fallegasta sem maður getur gert heiminum. TMM_4_2018.indd 53 6.11.2018 10:22
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.