Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Síða 70
G u ð m u n d u r A n d r i Th o r s s o n
70 TMM 2018 · 4
lífs. Um leið og hún er gysmál er hún hrífandi átakanleg og falleg. Uppruni hans
og ævilok eru að vísu í órofasambandi hvort við annað en þó eins og tvö skaut á
sama hnettinum. Heimurinn kom Sigurði ekkert við, og það var tiltölulega lítið sem
Sigurði kom við af heiminum […] Gæfa hans og ógæfa voru eins og samankræktir
hrútar á heiðum uppi, sem verða að bíða síns dóms. Hæfileikar hans og hæfileika-
leysi voru eins og samvaxnir tvíburar sem urðu að vera þar sem þeir eru komnir.
Um leið og ekki er hægt að treysta honum á ýmsum sviðum, treysta honum allir
á ýmsum sviðum. Um leið og hann er persónulega sterkur er hann ósjálfbjarga og
gengur meðfram vegkantinum á fólksins braut, eins og lítið barn við rúmstokkinn.
Aðhlátur og aðdáun, á einu og sama brettinu, er svipur minningarinnar um lífsferil
hans. Skemmtun og harmur gera forlög hans, hlið við hlið […]
Ofarlega í sveitinni sem heitir íslenzkasta nafninu af öllum sveitum í þessu landi:
Jökuldalur, þrátt fyrir það, að þar finnst ekki ein einasta snjófönn eftir að vetrarsnjóar
eru leystir, og í víðari löndum en nálega allra annarra sveita, stendur stórbýlið Eiríks-
staðir á Jökuldal. Nýtt og gamalt stórhöfðingjasetur, við geysilega heiðarvídd og
smalaþörf. Neðarlega á túninu stendur lítil kirkja, og skammt þar frá, sem Jökulsá
byltir sér í klettalegstað sínum. Umhverfis þessa kirkju er lítill kirkjugarður. Þar hvíla
bein Sigurðar smala. Það hefur enginn sett stein á leiði hans, og það á ekki við að setja
stein á leiði hans. Það væri að snúa við allri heimsins hefðarsögu, ef legsteinn með
áletruninni: Sigurður smali, fyndist í nokkrum kirkjugarði. Nei, legsteinar hafa sína
þýðingu, sína gerð og sín tákn í sögunni, og Sigurður smali er fyrir utan þetta allt
saman. Eins og hann er upprunalaus og ævisögulaus í þessum heimi, þá er hann líka
legsteinslaus á moldum sínum. […]
Hvítavoðir hans voru á Skjöldólfsstöðum, þegar hann var um tvítugt að árum, og
hlutverk hans frá hvítavoðum var eitt og hið sama, að auka í smalalag sveitarinnar og
það gerði hann svo eftirminnilega, að það er ómögulegt að komast fram hjá þessum
ómi: Sigurður smali af Jökuldalnum, meðan sveitin er smalaland eins og hún hefur
alltaf verið. Líf Jökuldælinga er smalalíf, þörf sveitarinnar er smalaþörf, og þeir sem
slíta lífi sínu á Jökuldal standa í órofa sambandi við Sigurð smala um líf og sögu […]
Þeir sem skilja Jökuldal og Jökuldalssögu, skilja óminn í þessu sérstæða ávarpi:
Sigurður smali af Jökuldalnum. Jökuldalur er stór af mörgu, en stærstur af heiðum
sínum og heiðalífi. Heiðalífið er féð og smalarnir. Féð og smalarnir gefa Jökuldal einn
sérstakan svip, öryggisleika og sjálfstæðis, yndisleika og starfsgleði, áhuga árvekni og
lífsnautnar, sem gerir þessa sveit að einskonar álflundi í mennskra manna landi. Nafn-
laust er þetta líf fyrir utan ærnöfn og samheitið smali. Þó gæti það heitið: draumurinn
um féð í Sauðfríðarsveit. Aðeins einn maður hefur hlotið nafn af álfleikunum í draumi
sveitarinnar: Sigurður smali af Jökuldalnum.
TMM_4_2018.indd 70 6.11.2018 10:22