Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Side 77

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Side 77
Æ t l a r þ e s s u m f r á s ö g n u m a l d r e i a ð l j ú k a ? TMM 2018 · 4 77 aðir vinir eru enn visst tabú enda þótt við lifum á miklum játningatímum. Rannsóknir á fullorðnum og ímynduðum vinum þeirra hafa líka verið mun færri en rannsóknir á börnum en mig langar þó að drepa á nokkrar gerðir ímyndaðra sambanda fullorðinna, sem hafa verið könnuð, og þá einkum með hliðsjón af rithöfundum, lesendum og persónum skáldsagna. III Rithöfundar hafa atvinnu af því að skapa ímyndaða heima og persónur. Margir þeirra hafa greint frá því að persónur þeirra taki stundum yfir rit- unarferlið með því að segja þeim hvað þeir eigi að skrifa.12 Auk þess þróa höfundar einatt með sér samband við persónur sínar sem þeir upplifa þá sem raunverulega einstaklinga. Sambandinu lýkur ekkert endilega þegar höfundurinn klárar skrifin. Iris Murdoch færði til dæmis lesendum sínum gjarnan fréttir af persónunum sem hún hafði skapað.13 Af því að hún var rit- höfundur voru frásagnir hennar taldar eðlilegasti hlutur í heimi, en hefði hún haft aðra atvinnu mætti eins búast við því að sumir hefðu talið hana veika á geði eða með ranghugmyndir. Ferlið, þegar rithöfundar eiga í samskiptum við sögupersónur, er vel þekkt og talið dæmigert fyrir mannlegt atferli. Það hefur verið kallað blekkingin um sjálfstæðu persónuna (e. illusion of indep- endent agency). Kjarni þessarar blekkingar er að persónurnar séu sjálfstæðar verur sem lúti ekki stjórn skapara síns. Með öðrum orðum upplifir höfundur skáldsagnapersónur sem manneskjur af holdi og blóði með sínar eigin hugs- anir, tilfinningar og markmið.14 Vigdís Grímsdóttir er meðal íslenskra höfunda sem hefur opinberlega lýst upplifun af þessu tagi en í viðtali við Pétur Blöndal lýsir hún sköpunarferlinu og samskiptum við persónur feikna vel: Ef saga virkar, þá fer hún inn í draumana þegar ég sef og fólkið kemur til mín eins og það sé til. […] Það er pínulítið eins og að fara inn í annan heim. En það getur verið gott að taka sér hlé á milli. Af því að þetta fólk sækir á mann, án þess þó að ég hafi nokkurn tíma farið yfir strikið. Það hef ég ekki gert – nema kannski aðeins, segir hún laumulega. – Ekki þannig að það væri í frásögur færandi. En ég gæti þess að fara ekki yfir lín- una. Þegar ég skrifaði Ísbjörgu [Ég heiti Ísbjörg, ég er ljón], sem er afar neikvæð bók, þá var ég farin að heyra í henni: „Nei, svona hugsa ég ekki!“ Rödd hennar var orðin svo sterk að við lá að hún yrði sterkari en mín. En mín rödd verður að vera sterkari! […] Sagan hverfist um ákveðna atburði og ég teikna grunninn og einstök svið, svona eins og barn teiknar, og hvað gerist á hverjum stað. Síðan verður fólkið, sem er orðið sterkara en ég, að fá að ráða einhverju. Ég hneppi ekki fólk í prísund og segi: „Vertu eins og ég vil!“ Það fær að ráða sér sjálft. Eins og Ísbjörg sem sagði bara: „Nei, svona hugsa ég ekki! Þú lætur mig ekki gera þetta!“ Eftir fyrstu drög að persónu verður hún sterkari og sterkari og hendir því út sem þvælist fyrir henni. Hún verður sterkari en ég og verður að fá sitt pláss.15 TMM_4_2018.indd 77 6.11.2018 10:22
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.