Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Blaðsíða 82
G u ð r ú n S t e i n þ ó r s d ó t t i r
82 TMM 2018 · 4
tengsl af þessu tagi í bókinni Minnisbók en þar líkti hann rithöfundum við
misnákomna fjölskyldumeðlimi:
Alltaf fjölgaði í fjölskyldumyndinni, baklandinu, það er að segja andlegu fjöl-
skyldunni sem maður velur sér, tengist sérlegum tilfinningaböndum liggur mér við
að segja.
Nokkrir urðu nánast eins og bræður í fjölskyldumyndinni, ég keypti öll verk þeirra
jafnharðan, las þá mér til hugljómunar: Patrick Modiano, Tahar Ben Jelloun, Kenneth
White …
Aðrir höfundar fóru inn í fjölskylduna sem misjafnlega fjarlægir frændur og
frænkur.39
Frægir ímyndaðir vinir, sem eru góðar fyrirmyndir, geta haft jákvæð áhrif
á þann sem ímyndar sér. Meðal annars getur sjálfstraust einstaklingsins og
félagsleg færni aukist vegna sambandsins. Stundum gegnir sá frægi hlutverki
leiðbeinanda sem einstaklingurinn ráðfærir sig við.40 Það hefur svo sannar-
lega ekki farið framhjá bókaútgefendum sem hafa notfært sér sambönd af
þessu tagi og gefið út sjálfshjálparbækur sem innihalda ýmis góð ráð frá stór-
stjörnum. Raunar eru ráðin ekkert endilega komin frá stjörnunum sjálfum
heldur höfundum sem ímynda sér hvernig þau frægu myndu bregðast við í
tilteknum aðstæðum. Það má því segja að höfundar bókanna gefi lesendum
hlutdeild í ímynduðum vinum sínum sem byggja á frægu fólki. Sem dæmi
um slíkar bækur má nefna What would Audrey do (2008) og What would
Jackie do (2005), sem sagt Audrey Hepburn og Jackie Kennedy, en eins og
kemur fram í lýsingu á Amazon kenna bækurnar hvernig hægt er að vera
eins og þær stöllur í „huga, hjarta og heima hjá sér“.41
IV
Umfjöllunin hér að framan hefur vonandi sýnt að það eru ekki einungis börn
sem eiga ímyndaða vini heldur flestir ef ekki allir fullorðnir líka. Slík vinátta
hefur marga góða kosti t.d. félagsskap, stuðning, nánd, aukna félagslega færni
og auðvitað skemmtun. Ef til vill finnst einhverjum sumar skáldsagnaper-
sónur uppáþrengjandi, eða að sumum frásögnum virðist aldrei ætla að ljúka.
En þá er gott að muna að ímyndunaraflið er besta aflið því í krafti þess er
til dæmis hægt að forðast leiðinlegar persónur og frásagnir, ferðast út um
hvippinn og hvappinn, stækka vinahóp sinn umtalsvert, kynnast gagnólíku
fólki og læra af reynslu þess.42
TMM_4_2018.indd 82 6.11.2018 10:22