Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Síða 86

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Síða 86
B r y n j ó l f u r Þ o r s t e i n s s o n 86 TMM 2018 · 4 skapi. Þvert á móti, mér finnst þeir afbrigðilegir, eins og þeir hafi verið teiknaðir af hugsjúkum manni, eins og skapari þeirra hafi ekki verið með öllum mjalla. Mín vegna mættu þeir allir drepast, úr hungri eða heimsku eða hverju sem er. Mér hefur alltaf fundist þetta innst inni, en miðvikudagspósturinn gerði útslagið. * PÁLÍNA: Hann breyttist. Því er ekki hægt að neita. Það var eins og að orð prestsins – er það einlægur ásetningur þinn að ganga að eiga Pálínu sem hjá þér stendur? – hefðu lagt einhver álög á hann, þráðurinn í honum styttist allavega svona rosalega. Hann gjörbreyttist. Og stuttu eftir að ég áttaði mig á því að hann væri alls ekki með nef, heldur gogg, tók ég eftir fjöðrunum. Hann var alsettur þeim, svörtum og gljáandi, hvernig það fór fram hjá mér líka er erfitt að útskýra. Sérstaklega svona eftir á. Svo má ekki gleyma klónum. Þær voru beittar sem hnífar, það fékk ég að finna á eigin skinni. * HALLDÓRA: Gráturinn kom ekki úr íbúðarhúsinu, ekki að ofan eða neðan, heldur barst hann að utan, og skar mig alveg inn að beini. Það er ekki að ástæðulausu sem ég er barnlaus. Það er val, sama hvað fólk kann að segja um það. Allavega, ég var búin að skyggnast lengi út í myrkrið, lá á glugganum til að átta mig á því hvað væri eiginlega á seyði, þegar ég sá hann loksins. Fuglinn. Hann sat í einni öspinni í garðinum, risavaxinn og svartur, stærsti fugl sem ég hef nokkurn tímann séð. Augun í honum glitruðu eins og smaragðar í myrkrinu, og ég fann að þau beindust að mér. Fuglinn starði á mig og orgaði eins og hvítvoðungur. * VÍÓLA: Inn um lúguna kom stórt umslag. Utan á því var nafn mitt skrifað með titrandi hendi. Ég opnaði það, í umslaginu voru þrjár svartar fjaðrir. Stórar, ég hafði aldrei séð svona stórar fjaðrir, og þær glönsuðu svo fallega. Ég vissi auðvitað ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Hver sendir fjaðrir án útskýringa? Átti þetta að vera rómantískt eða hvað var á seyði? Ég prófaði að setja fjaðrirnar í glas til skrauts á eldhúsborðinu en það leit hálf afkáralega út. Þá prófaði ég að dýfa oddinum á þeim í blek. Hugsaði að það væri eina rétta leiðin til að skrifa eitthvað fallegt um himininn. Út TMM_4_2018.indd 86 6.11.2018 10:22
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.