Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Síða 107
Fa s i s m i f o r t í ð a r o g b l i k u r v i ð s j ó n a r r ö n d
TMM 2018 · 4 107
skoðunar að í raun væri hugtakið ónothæft og marklaust þegar svo margs
konar og ólík merking væri lögð í það:
Ef þú biður venjulegt fólk í þessu landi [Bretlandi] að skilgreina fasisma þá er svarið
venjulega að benda á stjórnir Þýskalands og Ítalíu. En þetta er mjög ófullnægjandi
því að jafnvel helstu fasistaríkin eru ólík hvert öðru að uppbyggingu og hugmynda-
fræði. Það er ekki auðvelt til dæmis að láta Þýskaland og Japan passa í sama mótið
og enn erfiðara jafnvel með sum litlu ríkin sem lýsa má sem fasískum. Það er
venjulega gert ráð fyrir til dæmis að fasismi sé undantekningalaust stríðsstefna sem
þrífst í andrúmslofti styrjaldarbrjálæðis og geti aðeins leyst efnahagsleg vandamál
með stríðsundirbúningi og landvinningum í öðrum löndum. En þetta er ekki rétt
ef litið er til Portúgals eða ýmissa einræðisríkja Suður-Ameríku. Einnig er andúð
á gyðingum talin vera eitt helsta einkenni fasisma en sumar fasistahreyfingar eru
ekki gyðingahatarar. … Þegar við notum hugtakið fasismi yfir Þýskaland eða Japan
eða Ítalíu Mússólínís þá vitum við í meginatriðum hvað það merkir. Það er fremur
í innanlandspólitíkinni sem þetta orð hefur tapað merkingu sinni. Því ef þú skoðar
fjölmiðla þá muntu sjá að það er eiginlega enginn hópur fólks, og örugglega enginn
stjórnmálaflokkur eða skipulögð samtök af neinu tagi, sem hefur ekki verið úthróp-
aður sem fasískur á síðustu tíu árum.3
Það lá beinast við í upphafi þessara skrifa að leita á veraldarvefnum að skil-
greiningum á fasisma (e. facism). Eins og við er að búast eru þær margar
og misítarlegar en kjarninn í þeim öllum er að fasismi sé stjórnarfyrir-
komulag sem einkennist af einræði og brýtur í krafti þess á bak aftur alla
andstöðu og gagnrýni, hefur tögl og hagldir í efnahags- og atvinnulífi, auk
þess að einkennast af öfgafullri þjóðernishyggju og rasisma.4 Á vef Merriam
Webster-orðabókarinnar er fjallað um hlutbundna sögu orðsins og táknræna
merkingu þess í höndum ítalskra fasista. Enska orðið fascism og fascist eru
dregin af ítölsku orðunum fascismo (fasismi) og fascista (fasisti), sem eiga
rætur að rekja til orðsins fascio, í fleirtölu fasci, sem notað er yfir böggul,
knippi eða hóp. Orðið fascista var fyrst notað yfir meðlimi pólitísks hóps á
Ítalíu (fascio) árið 1914. Árið 1919 var heitið fascista notað yfir svartstakka
í bardagasveitum Benitos Mussolini (Fasci di combattimento) sem náðu
völdum á Ítalíu árið 1922. Um leið gerði Mussolini knippi af kornstönglum
ásamt öxi að tákni ítalska fasistaflokksins, sem tákna átti ítölsku þjóðina
sameinaða og hlýðna undir einræðisstjórn hans. Enska orðið fascist var fyrst
notað yfir meðlimi fasistahreyfingar Mussolinis en var síðan yfirfært á fleiri
hreyfingar sem aðhylltust svipaða hugmyndafræði.5
Áðurnefndur Robert O. Paxton skilgreinir fasisma í riti sínu The Anat-
omy of Fascism sem tiltekið form af pólitískri hegðun sem einkennist af
þráhyggjuhugmyndum um hnignun og niðurlægingu samfélagsins, eða að
það sé fórnarlamb vondra áhrifa og afla og til bjargar því komi fasisminn,
herskáir talsmenn hans, flokkur þeirra og stuðningsmenn, sem veita ekki
aðeins viðspyrnu heldur endurreisa samfélagið undir merkjum samstöðu,
krafts og hreinleika. Farið er fram með ofbeldi og öllum lýðræðislegum
TMM_4_2018.indd 107 6.11.2018 10:22