Ófeigur - 15.08.1948, Side 42
42
ÖFEIGUR
tíð. Þegar svo var komið, ákveð enska stjórnin, þingið
og þjóðin að hef ja sjálfsvarnarstyrjöld, sem hefur bjarg-
að menningu vesturlanda frá algerðu hruni. Sama er
að segja um Bandaríkin. Roosevelt sá af framsýni sinni,
að Bandaríkin urðu að koma til liðs við Breta og smá-
þjóðir Evrópu til að bjarga Ameríku og cðrum frjáls-
um þjóðum frá tímanlegri glötun. En þó að Roosevelt
beitti öllum yfirburðum sínum til að fá þjóð sína til
að skilja hættuna og koma hiklaust til hjálpar Bretum
og öðrum menningarþjóðum, sem börðust fyrir frelsi
sínu við möndulveldm, þá gat hann ekki fengið vilja
sínum framgengt, fyrr en Japanar réðust á Perluhöfn
með sviksamlegum hætti. Þá vaknaði öll Bandaríkja-
þjóðin og gerðist svo athafnasöm í styrjöldinni, að
þvílík átök hafa aldrei verið gerð í styrjaldarsögu þjóð-
anna.
Það er nauðsynlegt að átta sig glögglega á eðh þessa
máls vegna framtíðaröryggis íslenzka Iýðveldisins. Þær
raddir hafa heyrzt á Alþingi og í blöðum landsins, að
það sé nægileg trygging fyrir framtíðarsjálfstæði Is-
lands, að Bretar eða Bandaríkjamenn muni aldrei leyfa
nokkurri annarri þjóð að hernema Island. Þetta var
rétt fram að nýafstöðnum ófriði. Floti Breta í norður-
höfum var nógu öflugur til að hindra það, að nokkur
meginlandsþjóð gæti að óvörum hertekið Island. Það
var þess vegna frá Breta hálfu um þögula en ósamn-
ingsbundna vernd að ræða, og hefur það ástand varað
öldum saman, þar til tími flugvélanna hófst.
Göring hefur viðurkennt, eftir að stríðinu lauk, að
hann mundi hafa hertekið Island loftleiðis, eins og
Krít, ef hér hefðu þá verið flugvellir. Nú eru hér tveir
miklir flugvellir. Þegar Bandaríkin fara með liðsafía
sinn frá Keflavíkurflugvellinum, geta Rússar, ef þeim
býður svo við að horfa, á einni nóttu sent lofleiðis nægi-
legt herlið og vopn til að hertaka flugstöðvarnar á
Islandi og ráða þá um leið yfir íslandi og Atlantshafi
norðanverðu. Enginn vafi er á, að ríkisstjórnunum í
London og Washington mimdi líka slíkt hernám stór-
illa, en þær væru í svipuðum vanda staddar, eins og nú,
út af hernámi nokkurs hluta Persíu. Island hefði verið
„frjálst og fullvalda lýðveldi“, þegar hemámið fór fram.
Á yfirborðinu mætti líta svo á, að hernámið snerti ein-
göngu Islendinga og Rússa. Ríkisstjóm íslands mundi