Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 9
7
farið að skorta þar, er talsverður handfæraafli í maímánuði bjargaði
í bili. Nú um áramótin er útlitið þar aftur orðið ískyggilegt. Má af
þessu ennþá einu sinni sjá, að þorp eða kauptún, sem ekki styðjast
við ræktun, eiga engan tilverurétt.
Ögur. Afkoma héraðsbúa var í lakara lagi. Enginn hefir þó mér
vitanlega liðið skort á lífsnauðsynjum, þannig, að áhrifa yrði vart á
almenna heilbrigði.
Hesteyrar. Afkoma héraðsbúa er verri en undanfarin ár, enda ár-
ferði lakara bæði til lands og sjávar.
Reykjarfj. Afkoma manna almennt og hreppsins í betra lagi, og er
það einkum að þakka stórfeldum atvinnubótum í sambandi við byg'g-
ingu og starfrækslu stórrar síldarbræðslustöðvar á Djúpuvík og síld-
arsöltunar á Ingólfsfirði og Reykjarfirði.
Hólmavíkur. Afkoma til sveita sæmileg, en lakari hjá sjómönnum.
Miðfj. Sízt lakari afkoma en undanfarin ár.
Blönduós. Árferði var mun betra hér 1935 en árið næsta á undan.
Má fullyrða, að afkoma bænda yfirleitt hafi verið í betra lag'i, eftir því
sem gerzt hefir hin síðari ár. Afkoma kauptúnabúa var einnig í betra
lagi, og' olli því á Skagaströnd atvinna um vorið við hafnargerðina.
A Blönduósi var einnig sæmileg afkoma. Öðru máli er að gegna um
Kálfshamarsvik, því að þar er að verða ólíft.
Sauðárkróks. Ört vaxandi sveitarþyngsli, og munu vera orðin meiri
hér en sennilega nokkursstaðar á landinu. Ástand atvinnu og vinnu-
bragða í þessu héraði á þá lund, að bændur eru í mestu vandræðum
vegna skorts á vinnuafli, en hér í kauptúninu kvarta menn um at-
vinnuleysi.
Hofsós. Afkoma þeirra, er landbúnað stunda, hefir verið slæm.
Afkoma hinna, sem stunda fiskiveiðar, nokkru skárri.
Siglufj. Á síðasta ári versnaði hagur almennings og bæjarfélagsins
stórkostlega.
Ólafsfj. í fyrsta sinn um langt skeið fækkaði fólki hér í kauptúninu
á þessu ári, og er það bein afleiðing af versnandi afkomu og minni
atvinnu en áður hefir verið. Fólk hefir haft nokkurnveginn til að bíta
og brenna, en allt hefir orðið að bíða, sem á nokkurn hátt gat beðið,
t. d. húsabætur og viðhald, sem víða var aðkallandi, og annað þess
háttar. Auk þess hefir eitthvað safnazt af skuldum.
Svarfdæla. Allir tala um kreppuna, og frosnar skuldir er farið að
nefna, en skotsifur er nóg til skemmtana, sem aldrei hefir verið meira
um en nú, og um skort á lífsnauðsynjum hefir ekki verið að.ræða.
Höfðahverfis. Afkoma manna eftir vonum.
Reykdæla. Afkoma dágóð. Enginn skortur, svo að vitað sé.
Húsavíkur. Árferði í tæpu meðallagi. Talsverð óhreysti í fénaði
(ormaveiki), svo að afurðir urðu með rýrara móti. Hj'gg ég þó, að
engi skortur geti talizt enn til sveita. Afkoma þorpsbúa erfið. Síðast-
liðið ár var ræktað miklu ineira af kartöflum en áður, og túnræktin,
sem er orðin injög mikil, gerir það að verkum, að hér má heita að
nægileg mjólk sé í þorpinu, og mikill styrkur að sauðfjáréign þorps-
búa. Óhætt að telja, að menn hafi haft nægilegt að eta, en svo ekki
niikið umfram það.