Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Page 110
108
skák um aðsóknina, og að öðru leyti hefi ég séð og fundið á henni þá
annmarka, að mér er ekki lengtir neitt keppikefli að starfa við
spítalann.
Húsavikur. Hér hefir ekki starfað sjúkrahús síðan í júní 1934, en
á þessu ári var reist hér sjúkrahús, sem nú er komið undir þak og
á að fullgera á næsta ári.
Hróarsiungu. Sjúkrastofan hefir ekki verið notuð fyrir rúmliggj-
andi sjúklinga.
Seyðisfí. Á röntgenstofunni voru 17 sjúklingar myndaðir og gerðar
76 gegnlýsingar á 57 sjúklingum. Ljóshöð fengu 35 sjúklingar.
Reijðarfí. Sjúkrahús er ekkert í héraðinu, sem er mjög bagalegt. í
aðkallandi tilfellum hefi ég notað 1—2 herbergi úr íbúð fyrir
sjúklinga.
Fáskrúðsfí. Á miðju ári var íbúðarhús fyrrverandi læknis keypt og
síðari hluta ársins byrjað á því að g'era við það og brevta því í
læknisbústað og sjúkraskýli. Aðgerð var ekki nærri lokið um áramót.
Berufí. Sjúkrahús er ekkert í héraðinu, en á árinu urðu læknaskipti,
og átti fráfarandi héraðslæknir nýlegt og frekar vandað timburhixs.
Hafa héraðsbxiar staðið í samningum við hann unx kaxxp á húsinu
fyrir læknisbústað. Eru nú kaupin afráðin, og verður ein stofan ætluð
sjúklingum, og tekur hxin 2 rúm.
Hornafí. Vöntun á sjiikraskýli er hér alltilfinnanleg, þar sem sam-
göngur munu óvíða á öllu landinu erfiðari og' síður öruggar en á
Hornafirði. Áður en nxiverandi kreppa skall á, var bxiið að safna í
sjóð til sjúkraskýlisbyggingar ca. 4000 krónum, en síðan hefir ekkert
bætzt við.
Síðu. Þörf fyrir sjúkrahúsvist var talsverð á árinu og legudagar
með langflesta móti.
Rangár. Sjúkraskýlið starfaði þetta ár eins og að undanförnu.
Keflavíkur. Væntanlega kemst næsta ár upp sjxikraskýli það, sem
stendur til að reist verði með aðstoð Rauðakrossins og fjárframlög-
um frá einstökum mönnum.
B. Sjúkrahjiíkrun.*Heilsuverndun. Sjúkrasamlög.
II júkrunarfélög.
1. Hjúkrunarfélagið Líkn í Rvík gerir svofellda grein fyrir störf-
um sínum á árinu:
Við hjúlcrunarfélagið „Líkn“ i Reykjavík störfuðu 4 fastráðn-
ar hjúkrunarkonur árið 1935. Störf þeirra við félagið skiptust þannig:
2 við heimilishjúkrun, sjxikravitjanir, ein við berklavarnarstöð
Líknar og ein við ungbarnavernd Líknar. Hjúkrunarkonur ungbarna-
verndarinnar og berklavarnarstöðvarinnar aðstoðuðu heimilishjxikr-
unarkonurnar í sumarfríuin, frídögum og þegar annríkt var í bæn-
um. Vegna óvenju mikilla veikinda í bænuin frá nýjári og fram á vor,
sökum kíkhósta, skarlatssóttar og inflúenzu, veitti bæjarsjóður hjálp
til félagsins til þess að bæta við einni hjúkrunarkonu í 3 mánuði.
Þessi hjálp nægði þó ekki, og réði félagið þá á sinn kostnað 2
hjúkrunarkonur í viðbót til heimilishjxikrunar, þannig, að um tveggja
rnánaða skeið unnu 7 hjúkrunarkomir við Líkn, nær eingöngu við