Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Síða 131
129
skeggjar eru ekki einir uni það vín, sem hér selst. í landlegum fá
vermenn sér títt neðan í því. Mun sá siður tíðkast í öllum sjóþorp-
um, og því miður mátti sjá menn í hópum ölvaða á almannafæri hér,
meðan allt átti að vera þurrt. Kaffieyðsla er hér mikil. Vindlinga-
reykingar mjög miklar.
Rangár. Afengisnautn fer áreiðanleg'a minnkandi, þótt ekki sé það
sem ákjósanlegast enn þá. En fuilvíst er, að heiinabruggið er að réna,
þótt ekki sé það með öllu upprætt ennþá. Tóbaksnautn er mikil.
Gömlu mennirnir taka í net'ið, en unga fólkið, bæði karlar og’ konur,
reykir mikið af vindlingum. Kaffinautn víðast mikil og mjög’ víða
einhver stærsti útgjaldaliður heimilisins.
Grímsnes. Ég gat þess í skýrslu minni árið 1932, að nokkuð bæri
hér á heimabrugguðu áfengi. Nú er það horfið úr sögunni eða af
markaðinum að minnsta kosti. Það kemur fyrir nú eins og áður, að
menn sjást kenndir á samkomum. En mér er ekki kunnugt um nokk-
urn mann í mínu héraði, sem hefir beðið heilsufarslegt tjón al'
vínnautn.
Keflavíkur. Áfengisnautn er töluverð á öllum skemmtunum úti og
inni, og þær dansskemmtanir, sem ég’ hefi séð síðustu árin, eru þær
ruddalegustu. Það er mikill munur á þeim og dansskemmtunum
þeim, sem tíðkuðust í æsku minni, og því minnist ég á þetta. Ég vil
taka til dæmis, að engum hefði dottið í hug þá að fara inn í dans-
salinn með hattinn á höfðinu og’ þá því síður að fara í yfirhöfninni
og með vindil eða vindling í munninum þangað inn. Hver ,,dama“
hefði neitað slíkum „kavaler“. Þá sást aldrei „dama“ drukkin á
dansleik, en nú kemur það oft fyrir. Nú heimtar allur f jöldinn vind-
linga og vínföng á dansleikjum — annars eru þeir ekki sóttir.
8. Meðferð ungbarna.
Ljósmæður geta þess í skýrslum sínum (sbr. töflu XII) hvernig 2444
börn af 2540, sem skýrslurnar ná til, voru nærð eftir fæðinguna. Eru
hundraðstölur sem hér segir (tölur síðastliðins árs í svigum)
Brjóst fengu . . 89,0% (85,1%)
Brjóst og pela fengu . . 3,4— (5,2—)
Pela fengu 7,6— (9,7—)
í Reykjavík líta tölurnar þannig út:
Brjóst fengu . . 95,5% (95,2%)
Brjóst og pela fengu . . . . 0,9— (2,5—)
Pela fengu 3,6— (2,3—)
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Meðferð ungbarna er yfirleitt góð, bæði hvað hirðingu
og fæði snertir. f kauptúninu fá flest börn iýsi frá þvi að þau eru 2
mánaða.
Borgarfj. Lítið um meltingarkvilla í ungbörnum. Flestallar mæður
gefa brjóst.
Borgarnes. Meðferð ungbarna er yfirleitt góð og barnadauði fátíður.
Bíldudals. Meðferð ungbarna sæmileg. Þó hafa sumar konur ekki
börn sín á brjósti. Þær kvarta um, að þær mjólki ekki eða að börnin
þrífist eltki af mjólk þeirra. Nokkuð ber á beinkröm.
17