Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 115
113
Barnaveiki (ræktun úr koki &
nefi) ....................
Kikhósti (ræktun með „hósta-
plötu“) .................
A c t i n o m y c o s i s ..
L e p r a ..................
Angina Vincenti ............
Geitur (favus & trichophyti)
Ymsa r r an n sókni r (aðal!. vi
Jákvæð Neikvæð S amtak
331 936 1267
45 41 86
i 5 6
2 2 4
4 2 6
3 1 4
jaranns.) . . . Samtals 814 4629
Á árinu voru gerðar 96 krufningar sbr. skýrslu Landspítalans
1935.
4. Húsakynni. Þrifnaður.
Húsakynni almennings fara hægt og hæg't batnandi, og þrifnaður
eykst með ári hverju. Svartasti bletturinn á heimilismenningu íslend-
inga, einkum í sveitunum, er salernaleysið. Hafa læknar opin augun
fyrir þessu og munu ekki láta sitt eftir liggja, að fá úr því bætt. Áður
hefir verið bent á, að sjálfsagt skilyrði fyrir því, að heimiluð sé
mjólkursala til almennings frá heimili, sé að þar sé vel þrifið salerni,
er þá þarf að vera aðgengilegt fyrir allt heimilisfólk og nothæft vetur
sem sumar. í almennri mjólkurreglugerð, sem nú er í undirbúningi
(1936) samkvæmt hinum nýju lögum um eftirlit með matvælum, er
í ráði, að sett verði slíkt ákvæði, en þá þurfa húsameistarar vorir
að ráða þá gátu, að gera salerni, er kleift sé að koma upp á öllum
heimilum og komi að fullum notum, en það hefir vafizt fyrir þeim ti!
þessa að fá hana leysta.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Byggð 7 ný hús á Akranesi, öll með nýtízku þægindum.
Þó vantar skolpræsi í 3 þeirra, en við þau eru byggð salerni. I
sveitunum lítið byggt. Þrifnaður innan húss og utan góður hér í
kauptúninu, sæmilegur til sveita, sumstaðar mjög góður. Ekki hefir
horið á tilfinnanlegum vatnsskorti í ár, enda tíðin vætusöm á köfl-
um. Þó er vatnsveitumálið stærsta heilbrigðismál Akraness. Kóstnað-
urinn talinn um kr. 200000 að veita vatni frá Berjadalsá niður í kaup-
túnið. Málinu haldið vakandi.
Borgarfj. Eitt íbúðarhús var byggt þetta ár, stórt og vandað stein-
steypuhús með hverahita.
Borgarnes. Ég hefi rannsakað nokkuð, hvernig háttað er með sal-
erni ábæjum, og komizt að raun um, að þau vantar mjög viða og jafn-
vel á þeim bæjum sumum, þar sem nýtízkuhús hafa verið hyggð með
aðstoð ríltisins. Mjög óvíða eru húsakynni afleit í mínu héraði og
víðast hvar góð, en upphitun og lýsing víða ekki fullnægjandi. í
Borgarnesi eru mestu vandræði með neyzluvatn — aðeins grunnir
brunnar. Mjög erfitt að leiða úr þeim vatn vegna kletta og klappa.
Svo vilja pípurnar springa í frostum, og allt situr fast.
Ólafsvíkur. Húsakynni almennings eru frernur léleg, ekki sízt hér
í Ólafsvík. Er lítið gert að því að bæta þau þessi síðustu ár, enda
15