Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 85
3,4 sjúkrahússlegudagar koina á hvern mann í landinu (1934: 3,4), á
almennu sjúkrahúsunum 1,7 (1,7) og á heilsuhælunum 0,92 (0,91).
Sjúkdómar þeirra sjúklinga, sem lágu á hinum almennu sjiikrahús-
um á árinu, flokkast þannig (tölur síðasta árs í svigum):
Farsóttir ........................... 4,9% ( 3,0%)
Kynsjúkdómar ...................... 2,0— ( 1,7—)
Berklaveiki ....................... 12,2— (14,8—)
Sullaveiki ........................ 0,3— ( 0,3—)
Krabbamein og illkynjuð æxli ...... 2,8— ( 2,7—)
Fæðingar, fósturlát o. þ. h........ 9,9— (10,3—)
Slys .............................. 6,7— ( 6,0—)
Aðrir sjúkdómar ................. 61,2— (61,2—)
Borgarncs. Ekki er allt þetta fólk úr mínu héraði, því að samkvæmt
legu Borgarness liggja hingað bílvegir úr öllum áttum og því mikil
umferð bæði vegna viðskipta og' skemmtiferðalaga. Nota menn þá oft
tækifærið til að hafa tal af lækni. Oft er ég sóttur í nálæg héruð vegna
þessara góðu vega, og er stundum hægt að nota áætlunarferðir bíl-
anna. Lengsta ferðin var rúmir 100 km. hvora leið, sem sé vestur í
Hvammssveit í Dölum, og var hún farin til þess að taka þvag af göml-
um manni, sem var mjög illa haldinn af þvagteppu. Sú næstlengsta
var 83 km.
Ólafsvikur. Þess utan fór ég til Sands allt að tvisvar á mánuði, og
hafði þar þá auglýstan viðtalstíma fyrir sjúklinga, nokkra tíma á
dag. Kvenfélag Hellissands greiddi kaup fylgdarmanns, en ferðir
mínar voru ekki reiknaðar sérstaklega.
Reyðarfj. Sjúklingafjöldinn þetta ár er miklu ineiri en nokkurn-
tíma áður hjá mér, en hann er ekki miðandi við fjölda héraðsbúa,
liví að vegna bættra samgangna og þess, að Héraðsbúar sækja verzlun
sína nær eingöngu á Reyðarfjörð og Eskifjörð, leita margir þeirra til
mín í lækniserindum, þar eð þeirra læknar eru búsettir fjarri aðal-
samgönguleiðum.
F. Aug’nlækningaferðir.
Samkvæmt lögum nr. 12. 25. janúar 1934 ferðuðust 3 augnlæknar
um landið á veguin heilbrigðisstjórnarinnar: Kristján Sveinsson,
augnlæknir í Reykjavík, um Suður- og Vesturland, Helgi Skúlason,
augnlæknir á Akureyri, um Norðurland og Guðmundur Guðfinnsson,
héraðslæknir á Fáskrúðsfirði, um Austurland.
Hér fara á eftir skýrslur þeirra um ferðirnar:
1. Kristján Sveinsson:
í þetta skipti var ferðalögunum hagað svipað og síðastl. ár, nema
á Suðurlandinu fór ég, vegna eindreginna áskorana, austur á Síðu og
vann einn dag á Breiðabólstað — og á Vesturlandinu var ég' einn dag
í Grundarfirði. Á flestum stöðunum var margt af sjúklingum, meiri
hlutinn til að fá ráðleggingar um gleraugu, en nokkrir með alvarlega
augnsjúkdóma. Má þar helzt til nefna glaucomsjúklinga, en glau-
comið, er eins og' kunnugt er, sá sjúkdómur, sem mestri blindu veld-