Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 53
Reykhóla. Herpes zoster fengu 2 börn á sama bæ (systkin, sváfu
saman). Smitun?
Hólmavíkur. 2 tilfelli af herpes zoster.
Svarfdæla. Ristill: 4 skráðir, sá yngsti á fimmtugsaldri. Einn
þeirra hafði intercostalneuralgi vikum saman áður en ristilbólurnar
komu, og yfirleitt var sjúkdómurinn þungur og þrálátur á honum.
A hinum öllum var hann typiskur og ekki þyngri en vanalega.
Húsavíkur. Herpes zoster: 3 tilfelli, og er það líkt og vant er.
Norðfi. Herpes zoster: 2 sjúklingar.
fíeijðarfj. Herpes zoster: Hefi ekki getið þessarar veiki á mánaðar-
skrám, en árlega koma hér fyrir nokkur tilfelli.
Hornafj. Herpes zoster: Hefi séð hér fáein tilfelli, mjög væg.
B. Aðrir næmir sjúkdómar. Krabbamein. Drykkjuæði.
Töflur V, VI, VII, 1—4, VIII og X.
1. Kynsjúkdómar (morbi venerei).
Töflur V, VI og VII, 1—3.
Sjúklingafjöldi 1926—1935 : 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935
Gonorrhoea . 340 348 407 431 519 400 372 482 576 665
Syphilis .... 32 34 21 13 29 21 50 37 30 35
Ulcus vener. . 5 5 3 12 15 3 1 7 2 2
Lekandi: Skráðum lekandatilfellum fer enn fjölgandi og nær
eingöngu fyrir tiltölulega mikla aukningu í 3 kaupstöðum utan
Reyk javíkur: fsafirði, Siglufirði og Akureyri.
Sárasótt: Tala skráðra tilfella svipuð hin síðustu ár, og enn
sem fyrr aðalleg'a í Reykjavík.
Linsæri: Aðeins 2 tilfelli talin fram, bæði í Vestmannaeyjum
og án nánari greinargerðar.
Hér fer á eftir:
Skýrsla til landlæknis fyrir árið 1935
frá Hannesi Guðmundssyni, húð- og kynsjúkdómalækni
í Reykjavík.
Gonorrhoea: Sjúklingar með þenna sjúkdóm voru á árinu samtals
388. Af þeim voru 12 börn á aldrinum 1—15 ára, 117 konur og 259
karlar. 24 sjúklingar voru útlendingar.
Eftir aldursflokkum skiptust þessir sjúklingar þannig:
Aldur, ár 1—5 5—10 10—15 15—20 20—30 30—40 40—60 Yfir 60
Konur .......... 6 4 2 27 76 11 3
Karlar.............. „ „ 34 171 43 10 1
Helztu fylgikvillar voru:
Prostatis acuta fengu 18 sjúklingar.