Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Side 97
95
yrða, að ekki var um „kriminel" aborta að ræða. Enginn abortus
provocatus á árinu. Þeim fer stöðugt fjölgandi, sem óska eftir upplýs-
ingum um takmörkun barneigna.
Eijrarbakka. Ein kona með placenta praevia. Gerð vending áður en
fæðing byrjaði og framdráttur síðar. Deyfing. Konan náði sér furðu
fljótt, farin mikið að fjörgast áður en hríðirnar byrjuðu.
Grimsnes. 4 sinnum þurfti minnar aðstoðar við fæðingar, og var
tilefnið einkum lélegar hríðir. Fósturláta er ekki getið í skýrslum
ljósmæðra, og er mér ekki kunnugt um nein fósturlát í héraðinu
á árinu.
Keflavíkur. 2 fósturlát.
V. Slysfarir.
Slysfaradauði og sjálfsmorð á síðasta áratug teljast sem hér segir:
1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935
Slys ........ 84 69 71 61') 88 57 53 112 55 90
Sjálfsmorð . . 2987664 16 12 8
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaffa. Mesta og sorglegasta slvsið á árinu var þegar m/b
„Kjartan Ólafsson" fórst í mannskaðaveðrinu 14. des. með allri á-
höfn. Bifreiðarslys varð hér á Akranesi. Var það svokallaður ,,body“-
bíll með 20 farþegum, inest börnum. Hvolfdi bílnum alveg, og brotn-
aði hann svo mikið, að hann mátti heita gereyðilagður. Var hann á
leið niður i kauptún með farþegana frá skemmtisamkomu, sem hald-
in var fyrir slysavarnafélagið. Þurfti bifreiðarstjórinn að taka krappa
beygju, en jiá missti hann vald á bifreiðinni, og lenti hún af miklu
afli á grjótgarði hægra megin við götuna. 6 farþegar meiddust
töluvert, og 5 fengu skrámur og mörðust. Ungur sjómaður, 23
ara, fór á bifhjóli með talsverðum hraða niður hafnarbryggjuna.
Hún var sleip af fiskslori, og missti maðurinn vald á hjólinu. Þegar
hann kom á enda bryggjunnar, datt hann af hjólinu niður á pall,
sem verið var að steypa, ca. % m. niðar. Hann marðist á höfði og
tótum, nefbrotnaði, hlaut smáskurði víðsvegar um andlitið og heila-
hristing. Hann dó af afleiðingum slyssins eftir rúman % mánuð.
Ölvaður sjómaður datt út af vegarbrún, sem var ca. 1 meter á hæð,
<>g handleggsbrotnaði. Fract. nasi 1, radii 2, claviculae 2, costae 3,
cruris 2, humeri complicata 1. Distorsio 5. Contusio 12. Ambustio 4.
54 ýmiskonar smásár.
Borffarfj. Slys 53, engin stór. Skólapiltur í Reykholti meiddist með
þeim hætti, að hann stakk sér til sunds af háum palli, lenti með
höfuðið á baki annars sundmanns og skekktist við það í hálsliðn-
uni, svo að ekki varð reponerað. Hann lá á spítala all-lengi i exten-
sion og fékk nokkurnveginn fullan bata. Ekki sakaði þann, sein fyrir
1) Þar að auki eitt morð.