Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Qupperneq 74
telpu með sarcoma femoris. (Ekki á ársyfirliti!) Sendi ég hana á
Landspítalann, og' var gerð á henni amputatio. Lifir hún ennþá við
góða heilsu, að því er virðist.
Keflavikur. Einn sjúklingur með ca. ventriculi. Dó.
9. Drykkjuæði (delirium tremens).
Töflur V.—VI.
S júklingafjöldi 1929 —1935:
1920 1930 1931 1932 1933 1934 1935
Sjúkl.......................... 4 4 „ 2 „ 6 5
r
C. Ymsir sjúkdómar.
1. Algengustu kvillar.
Nokkrir læknar geta um algengustu kvilla, sem þeir fá til með-
ferðar svo sem:
Hafnarfj. Gigt er mikil í ungum og gömlum. Tannskemmdir í hverj-
um munni, en menn láta nú frekar gera við tennur sínar en áður
tíðkaðist. Botnlangabólga er tíður sjúkdómur, sömuleiðis maga- og
garnakvef. Taugaveiklun er alltíð, sérstaklega í kvenfólki. Það virð-
ist svo, sem gigt, tannskemmdir, maga- og garnakvef og taugaveikl-
un aukist við hiu auknu lífsþægindi fólksins. Mér virðist fólkið vera
likamlega lingerðara nú en áður, þegar það varð að hafa meira fyrir
lífinu.
Skipaskaga. Af almennum kvillum eru tannskemmdirnar langtíð-
astar, þá tauga- og gigtveiki, sem er algeng mjög á eldri útslitnum
mönnum.
Borgarfj. Tannskemmdir sem fyrr algengasti kvillinn.
Miðfj. Ég hefi talið saman þá sjúkdóma, er oftast koma fyrir á ár-
inu, og eru þeir, sem hér segir: Farsóttir og aðrir sjúkdómar á mán-
aðarskrám 431, tauga- og gigtsjúkdómar 77, tannskemmdir 158, slys
allskonar 62, ígerðir og bráðabólgur 51, meltingarkvillar 36, húðsjúk-
dómar 36, blóðsjúkdómar 28, augnsjúkdómar 26, andfærasjúkdómar
23, hjarta- og æðasjúkdómar 20.
Blönduós. Tannskemmdir eru hér allalgengar, en þó ber ekki líkt
þyí eins mikið á jieim eins og t. d. í Vestmannaeyjum. Heymæði er
algeng í karlmönnum, sem orðnir eru miðaldra, og á vafalaust sinn
þátt í því að gera marga lungnabólgu banvæna. Margir kvarta sárlega
undan henni nú eftir 2 votviðrasöin sumur og lélega verkun á heyjum.
Fljótsdals. Algengustu sjúkdómar hér eru tannskemmdir, gigt og'
taugaveiklun.
Regðarfj. Algengustu kvillar hér eru tannskemmdir, gigt og blóð-
leysi. Mjög margir kvarta um hægðatregðu, einkum kvenfólk.
Hornafj. Almennustu kvillar: Tannskemmdir, gigt, ígerðir, tauga-
veiklun, magasjúkdómar, kvensjúkdómar, heymæði (lungnaþemba),
auðvitað að ógleymdu kvefinu.
Siðu. Tannsjúkdómar voru, eins og áður, algengustu kvillarnir og'