Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Qupperneq 137
135
Borgarnes. I farskólunum í sveitinni hefi ég falið kennurunum að
hafa nákvæmt eftirlit með heilsufari barnanna og hreinlæti og gera
mér aðvart, ef út af ber. Börnin eru mjög fá, t. d. 10 í Hraunhreppi
og 15 í Álftaneshreppi, og sjaldan er víst mikið yfir helming af þess-
um hópum í einu hjá kennara. Virðist, að sameina mætti þessa 2
hreppa og spara annan kennarann. Líklega hentugast að hyggja
heimavistarskóla á hentugum stað. Gæti þá eftirlit með heilsu barn-
anna orðið fullkomnara. Annars eru víða í þessum nýbyggðu húsum
góðar stofur, sem notaðar eru til þessa fámenna skólahalds.
Ólafsmkur. Skólaskoðanir framkvæmdar í öllum hreppum. Heppi-
legastur tími til skólaskoðana í sveitunum er vitanlega um eða upp
úr réttum, en fneðslunefndir voru þá ekki búnar að ákveða skóla-
staði og fleira. Húsakynnum farskólanna er að vísu vmislegt ábóta-
vant, en yfirleitt virtust þau svo góð, sem föng voru á eftir ástæðum.
Aðalgallinn er nú sem fyrr skortur á upphitun. Barnaskólinn á Sandi
er orðinn of lítill, og verður skólinn að leigja stofu í viðbót á öðrum
stað. í Ólafsvík er gott skólahús og leikfimissalur, en sá galli er á,
að leikfimi er ekki kennd við skólann.
Stykkishólms. Húsnæði farskólanna er svipað og undanfarin ár.
I Stykkishólmi var nýja skólahúsið tekið í notkun eftir áramótin
1935. Það er mjög vandað, tvílyft steinsteypuhús með 2 rúm-
góðum kennslustofum á hvorri hæð inóti suðri, 3 minni herbergj-
um, göngum, fataherbergi, vatnssalerni og baði. Húsið kostaði, með
ýmsum nýjum kennsluáhöldum, skólaborðum og stólum, lcringum
(50 þús. kr.
Flateyrar. Skólarnir í kauptúnunum eru orðnir of þröngir, sérstak-
lega skólinn á Flateyri. Sá skóli hefir í raun og veru allt af verið inesta
ólán. Á komandi sumri verður væntanlega reist nýtt leikfimishús og
fæst þá meira pláss i hinum gamla skóla. í sveitinni, þar sem eru sér-
stök skólahús, eru þau köld og þeim frekar illa við haldið (Hestur.
Þórustaðir). Miklu hetri eru skóiastofurnar á Ingjaldssandi o.g í Val-
þjófsdal, en á báðum þessum stöðum er kennt í stofum í íbúðarhús-
um, sem ekki eru byggð sem skólar.
ísafj. Ráðinn tannlæknir við barnaskólann ó Ísafirði.
Ögur. Skólaskoðun fór fram við alla skóla, um það leyti er kennsla
hófst. í Reykjanesi var heimavist skólans endurhætt síðastliðið
sumar. 2 forstofur voru byggðar fyrir framan hvorn svefnskála.
í hvorri þeirra eru vatnssalerni. Þá var byggð borðstofa, 5,65 m. X 4,35
m„ og steypibaðsklefi. í sambandi við útihúsbyggingu (gripahús) var
hyggð smíðastofa, 5,2 m. X 4 m. Vatns- og skolpleiðslur, að og frá
heimavist, voru auknar og endurbættar, og 2 safnþrær steyptar, fyrir
skólahús og heimavist. Byrjað er á vegagerð milli mannvirkja skól-
ans og lagfæringu umhverfis þau. Verður því verki haldið áfram á
næsta vori, enda mjög nauðsynlegt vegna hreinlætis.
Reykjarfj. Fastur skóli er fyrir allt héraðið í Arnesi. Er það ný-
byggt steinhvis með stórri og bjartri skólastofu og heimavist fyrir öll
börn, er skólann sælcja.
Blönduós. Farskólar eru alstaðar hér nema á Blönduósi og á
Sveinsstöðum. Heimavistarskólar eru engir, en víða eru börn vistuð