Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 60
58
Skiposkagn. Sjúkdómurinn virðist ekki hafa breiðzt mjög út á ár-
inu, frekar staðið í stað Öll skólabörnin voru Pirquetprófuð. 8
voru nú -j-, er áður voru Af 53 sveitabörnum, sem skoðuð voru,
voru aðeins 4 -f-.
Borgnrfj. Fyrir 12 árum kom upp berklaveiki á heimili einu í hér-
aðinu. Sonur hjónanna veiktist þá af bráðatæringu og dó heima. Nokk-
ur veila hefir síðan verið í systkinum hans, en lítil brögð að því fyrr
en nú. Fyrst veiktist þar i vor sonur hjónanna, 28 ára, upp úr in-
flúenzu (fékk skömmu síðar herpes zoster), með „Frúhinfiltrat" í
lunga. Er nú á heilsuhæli og á batavegi. Nokkru seinna veiktist 12
ára gamall drengur, sem hefir alizt þar upp, af brjósthimnuhólgu.
Var hann Pirquet ~ við skólaskoðun árið áður, en sterkt + í haust.
Hann lá heima og batnaði. Þá veiktist þar enn dóttir hjónanna, 27
ára, af lungnaberklum, og er nú á hæli. Veikin er hægfara í þessum
sjúklingum öllum. Ég skoðaði heimafólkið allt og leitaði að sýklum,
en fann ekki. Sendi þá hráka ti! Rannsóknarstofu Háskólans til berkla-
ræktunar, og fundust sýklar hjá stúlkunni, sem siðast var nefnd, en
öðrum ekki. Barn er á heimilinu, 1(4 árs gamalt, og' var það Pirquet +
um þetta leyti. Mun ég hafa vakandi auga á þessu heimili framvegis.
Við Pirquetpróf á skólabörnum reyndust 3 börn vera -f- af þeim,
sem voru ~ í fyrra. Eitt þeirra var 12 ára drengur á herklaheimilinu,
sem að framan getur, hin 2 voru systkini, sem xnér er óknnnugt,
hvernig hafa smitazt.
Borgarnes. Berklaveiki er ekki mögnuð hér, og enginn hefir dáið af
hennar völdum þetta ár.
Ólafsvikur. Berklaveiku sjúklingarnir eru tiltölulega flestir hér í
Ólafsvík, og sama kemur fram við Pirquetpróf á skólabörnum, sem
nánar verður vikið að. Var jrað gert á börnum barnaskólanna í Ólafs-
vík og' Sandi, alls á 136 hörnum, og voru 21 P+, eða 17,6%. í Ólafs-
vík voru þau 15 af 58, eða 25,9%, en á Sandi 9 af 78 eða 11,5%, og er
það að vísu mikill munur. Við eftirgrennslun um smitunartækifæri
jressara barna virðist vera um heimilissmitun að ræða hjá 9 af 15
börnum í Ólafsvík, en hjá 6 af 9 börnum á Sandi. Um hin börnin er
ekki hægt að segja með neinni vissu.
Stykkishólms. Árið 1932 og' fram í nóvember 1934 var maður við
Korpúlfsstaðabúið í Mosfellssveit og fór með bíl þess, er á var flutt
mjólk til kaupenda í Reykjavík. Hann lét af starfinu vegna þráláts
kvefs og' hósta, sem hann fékk þá urn sumarið, og kemur hann hingað
heirn til foreldra sinna ,,á meðan sér sé að batna". Mín er vitjað ti!
hans 19. des. Hann er þá horaður, nokkuð mæðinn, nreð harðan hósta
og graftarlitaðan uppgang. Hiti hefir eigi verið mældur, en er nú
38,4 stig. Hann liggur nú ca. einn mánuð ineð 38—39 stiga hita, tölu-
verðan hósta og uppgang'. Tbc. i hráka. Allmiklar stethoscop. breyt-
ingar heyrast í v. lunga, samfara cavernuhljóði. Kemst hann á fætur,
en leggst svo aftur með hita, verk í vinstri síðu og blóði í hráka. Blóðið
hverfur eftir nokkra daga. Fyrstu dagana i marz fær hann skyndilega
óþolandi verk í v. síðu, sem leggur niður í kviðarhol. Þannig liggur
hann í 10 daga. Verkir láta nokkuð undan deyfandi sprautum. Hjarta-
deyfa er nú allrnikil til hægri, og apex finnst greinilega Við hægri
1