Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Side 77
/o
nokkrum sinnum hafa komið fyrir í Öræfum, en ekki annarsstaðar
í héraðinu, svo að ég viti. I Öræfum er mjög lítið borðað af fiski.
12. Osteochondritis coxae juvenilis (Mb. Perthes).
Svarfdæln. 13 ára gamall drengur. Þegar 1932 varð þess vart
við skólaskoðun, að hann hafði áberandi lordosis, en ekki bar á
öðrum sjúkdómseinkennum þá. Á þessu ári fór að hera á coxitis-ein-
kennum, er í fyrstu vöktu grun um berkla, en drengurinn var alltaf
hitalaus og berklapróf og röntgenmynd, er tekin var á Akureyri,
skar úr, að um Mb. Perthes væri að ræða. Er nú á batavegi.
Húsavíkur. Einn sjúklingur, drengur 8 ára. Er nú nær albata.
13. Oxyuriasis.
Skipaskaga. Hei'ir verið fremur fátíður í ár. Hjá mér skráð 3 tilfelli.
Bíldudals. Er algengur sjúkdómur hér, en læknis sjaldan vitjað.
Húsavikur. Þessi kvilli mun mjög algengur, einkum á börnurn.
Fljótsdals. Njálg sé ég nokkrum sinnum.
Regðarfj. Oft er leitað ti! mín vegna njálgs, sem virðist mjög al-
gengur kvilli.
Keflavíkur. Nokkuð ber á njálg í börnum.
14. Panaritia, furunculi etc.
Skipaskaga. Fingurmein hafa verið fremur fátíð í ár.
Borgarnes. Furunculi, panaritia og aðrar ígerðir voru tíðar, en ekki
rnjög alvarlegar og slcildu aldrei eftir stórfelld varanleg mein. Lak-
astur var einn fláningamaður í sláturhúsinu í haust. Hafði hann
skurfu á hendi. Hélt hann áfram að flá einn dag, þótt bólga væri
byrjuð, fékk svo háan hita og rnikla phleg'mone á hendi og hand-
legg. Skar ég 2 stóra skurði í handarbak, — allt flóði í pus: lét ég
sjúklinginn halda hendi og framhandlegg niðri í heitu, soðnu græn-
sápuvatni í % klt. á hverju kvöldi í aflöngum potti. Batnaði sjúk-
lingnum fljótt, og varanlegt mein virðist ekki vera fvrirsjáanlegt.
Húsavíkur. Panaritia. Lymphangitis: Mikið af þeim allt árið, en þó
mest og verst í október, og var þá samtímis erysipelas sem faraldur.
Ekkert þeirra þó svo, að stórskemmdir yrðu að.
15. Pemphigus neonatorum.
Húsavíkur. 2 tilfelli á hraustum, fullburða börnum á þrifaheimil-
um. Annað allsvæsið.
16. Psychosis.
Hofsós. Snemma á árinu skeði það fáheyrða tilfelli í Hofsóshreppi,
að 3 systkini urðu brjáluð í sömu vikunni. Orsökin til þessa var
sú, að 2 bræður hér lir sýslunni praktiseruðn hér svokallaðar
huldulækningar. Hleypti þetta töluverðri æsingu i. fólk, sem áleit,
að hér væri um taheyrða opinberun að ræða.
17. Purpura fulminans.
Seyðisfj. Or þessum kvilla er 2 ára barn talið að hafa dáið.
18. Rachitis.
Borgarfj. Aðeins 2 tilfelli, mjög létt.
Borgarnes. Ekki tíð hér né þnng. Börn nota mikið lýsi, jafnvel full-
mikið sum.
Ögur. 2 meybörn á 1. ári með allmikla beinkröm. Annað dó úr
kikhósta skömmu eftir að ég sá það. Hitt hefir fengið fullan bata.