Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 43
41
bólusetti ég aðeins yngstu börnin, 1—3 ára, en þau eldri voru ckki
bólusett. Venjan var sú, að veikin var erfiðari á þeim yngri, þótt bólu-
sett væru.
Eijrnrbakka. Kikhóstinn mun hal'a flutzt inn í héraðið í miðjum
maí eða jafnvel fyrr, en við læknar sáum hann ekl<i fyrr en í fyrstu
viku júnimánaðar. Hann fluttist frá Reykjavík í margar sveitir hér-
aðsins um sama leyti. Fjöldinn allur veiktist svo vægt, að ekki var
leitað læknis. Þó sá ég um það bil einn tug sjúklinga, er fél<k kik-
hóstann afarþungan, sumir hin afarþungu hóstaköst, sumir mikla
sóttveiki með bronchitis og bronchopneumonia. Veikin var komin svo
víða, áður en menn áttuðu sig á henni, að ekki þótti ástæða til að
reyna varnir. Dálítið var gert að því að sprauta lyfjum í heilbrigð
börn til varnar gegn kikhósta, en það reyndist algerlega gagnslaust.
Elzti kikhóstasjúklingurinn var (54 ára að aldri.
Grimsnes. Varð fyrst vart í apríl, en náði ekki verulegri útbreiðslu
fyrr en í maí. Voru sjúklingar flestir í þeim mánuði. Fór svo að
draga úr veikinni, og var hún að minnsta kosti hætt að sýkja í ágúst.
Þegar fréttist, að byrjað væri að bólusetja börn gegn veikinni í Reykja-
vík, óskuðu margir foreldrar þess, að ég bólusetti börn þeirra. Bólu-
setti ég um 100 börn á aldrinum %—10 ára með kikhóstavaccine frá
Rannsóknarstofu Háskólans. Fékk hvert barn 3 skammta með nokk-
urra daga millibili, 0,5, 0,7 og 1 ccm. undir húð, en yngstu börn-
in fengu aðeins hálfa skammta. Árangur bólusetningarinnar varð
ekki eins góður og maður gerði sér vonir um. í Hrunamannahreppi,
þar sem ég bólusetti rúml. (50 börn, sýktist helmingurinn um það
leyti og rétt á eftir að bólusetningu var lokið. í hinum hreppunum
varð útkoman nokkuð betri. Fjöldi inanna reyndi að verja börn sín
veikinni með samgönguvarúð, og tókst mörgum vel. Eitt af hinum
bólusettu börnum sýktist (5 vikum eftir að bólusetningu var lokið.
Ekkert hina hólusettu barna fór verulega illa út úr veikinni. 2 börn
á 1. ári dóu úr veikinni (óbólusett).
Keflavíkur. Ofan á inflúenzuna bættist kikhóstinn, sein fór yfir allt
héraðið. Þó einstaka tilfelli væru allþung, þá má þó segja, að veikin
væri yfirleitt væg. Börn voru allmennt bólusett, að minnsta kosti í
Grindavík, og má vera, að veikin hafi orðið vægari að einhverju leyti
vegna þess, en þó tel ég það vafasamt.
17. Svefnsýki (encephalitis lethargica).
Töflur II, III og IV, 17.
.Siúklimjafjöldi 192(5—1935 :
1 !)2(i 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935
Sjúkl............... 17 3 7 <3 14 14 13 7 0
Dánir ....... „ „ 1 „ 2 „ 1 2 1 3
Aðeins getið í 2 héruðuin, Rvík og Blönduós, án þess að nán-
ari grein sé gerð fyrir.
o