Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Side 122
120
saltfiskur, sem borðað er hér i sveitinni og hann ef til vill ekki ætíð
eins góður og ekki eins ódýr og vera ætti. Þetta er vanalega úrgangs-
fiskur, en bændur segja inér, að hann kosti sig næstuin eins mikið
og fyrsta flokks fiskur, sem seldur er til útlanda, — eitthvað ólag
er á því, ef satt er. Heyrt hefi ég kvartað yfir því í sveitinni, að hús-
mæðrum gefist ekki kostur á nægilegri praktiskri fræðslu í mat-
reiðslu. Þær segjast ekki hafa neitt tækifæri til að fara á námsskeiðin
á skólastöðunum, því að ef húsmóðirin fer, er vanalega enginn full-
orðinn kvenmaður heiina. Eg held, að það væri til stórbóta, að send
væri dugíeg matreiðslukona uin sveitirnar, sem dveldi 2—4 vikur í
hverjum hreppi og leiðbeindi í hagnýtri notkun þess, sem fyrir
hendi er.
Stykkishólms. Nokkuð hefir aukizt áhugi manna fyrir því að búa
meira að sínu, sem svo er kallað. Það kemur t. d. nokkuð fram í
því, að fólk kaupir minna en áður nærfatnað og sokka úr verzlunum.
Flateyrar. Nýr fiskur fæst svo að segja árið um kring og er mikið
borðaður. Að öðru leyti skiptir mjög í tvö horn með Önundarfjörð
og Súgandafjörð. í Önundarfirði er garðrækt og grasrækt mikil, en í
Súgandafirði sára lítið um slíkt. Merki þessa held ég að megi glögg't
sjá á andlegum og likamlegum þroska barna og unglinga i kauptún-
um þessara fjarða.
Ögur. Talsvert notað af heimaunnum fatnaði, einkum nærfatnaði.
Þykir hinn heimaunni fatnaður bæði haldbetri. hlýrri og ódýrari en
hinn útlendi. Kvenþjóðinni hættir jió frekar við að kaupa það, sem
auganu þykir girnilegt. Fólk gengur víðast hvar þokkalega til fara.
Skófatnaður viða lélegur, íslenzkir skór og gúmmískór. Viðurværi mun
hér svipað því, sem gerist víðast hvar í sveitum. Mjólkurneyzla er þó
sumstaðar af skornum skammti, enda selur fjöldi heimila alla þá
mjólk og þær mjólkurafurðir, er þau mega án vera. Of mikið gert að
því að kaupa mjölmat og kaffi í staðinn. Yfirleitt mun fæði manna
vera mjög fjörefnafátækt að vetrinum. Garðyrkja hefir stórurn aukizt
á seinni árum.
Hesteyrar. Matur yfirleitt góður og hollur. Notkun lýsis fer í vöxt.
Nokkur heimilisiðnaður er víðast stundaður. Ganga flestir hlýlega
og þokkalega til fara.
Blöndaós. Garðrækt færist mikið í vöxt hin síðari ár.
Sauðárkróks. Á mataræði alþýðu og jrmsa ósiði væri vert að minn-
ast. Ég mun þó láta það ógert að jæssu sinni, en láta nægja að benda
á umsögn mína og tillögur um það efni i skýrslu síðastliðið ár.
Ólafsfj. Það hefir til skamms tíma verið álit manna hér, að garðrækt
mundi ekki lánast í firðinum, enda var ekkert teljandi til þess reynt.
A seinustu árum hefir það hinsvegar sýnt sig, að gulrófur, kartöflur
og allar algengustu káltegundir, sem annars þrífast hér á landi, ná
hér góðum jiroska. Jafnvel á þessu sumri, sem bæði var kalt og vot-
viðrasamt, spruttu kartöflur hér ágætlega.
Höfðahverfis. Ein prjónavél hefir bætzt við á árinu. Spunavélar
ganga á rnilli bæja til notkunar. Fæði ágætt. Þó er víða lítið sena
ekkert notað af garðávöxtum, en samt evkst framleiðsla þeirra, og er
talsvert selt á mörgum bæjum.