Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 68
6(5
4. Holdsveiki (lepra).
Töflur V—VI.
Sjúklingafiöldi 192(5- 1935 :
1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935
Á Laugarnesi 36 34 32 27 24 21 19 19 22 19
í héruðum . . 14 10 9 11 11 10 8 8 9 7
Samtals .... 50 44 41 38 35 31 27 27 31 26
A mánaðarskrám er aðeins getið um 2 sjúklinga, í Akureyrar og
Reykdælahéruðum.
Utan sjúkrahúsa er getið um 7 sjúklinga i þessum héruðum:
Hóls: 1 (kona 79 ára).
Ólafsfj.: 1 (karl 57 ára).
Akureyrar: 2 (karl 78 ára, kona 62).
Húsavíkur: 2 (karl 54 ára, kona 59).
Grímsnes: 1 (karl 66 ára).
Læknar láta þessa getið:
Stykkishólms. Á árinu dó sá maður, sem undanfarin ár hefir staðið
á skýrslunni.
Ólafsfi. Einn holdsveikissjúklingur er í héraðinu, sá sami og áður.
Hann er með 1. anaesthetica og virðist hatnað. Stundar vinnu (húsa-
smíði) fullum fetum og kvartar ekki um veruleg óþægindi. Hann
hefir þó alltaf sár neðan á hæl, sem aldrei vill gróa. Hann hirðir það
sjálfur, brennir öllum umbúðum og virðist yfirleitt fara hreinlega
með allt, sein þar að lýtur. Hann sefur í herbergi út af fyrir sig', en
borðar og heldur að öðru leyti til hjá dóttur sinni. Nú er hún nýgift
og farin að eiga börn. Vonandi stafar eng'in hætta af þessu, en hverju
er að treysta í þvi efni?
Reykdæla. í marzmánuði fannst sjúldingur —- utanhéraðs — 75
ára kona, ljósmóðir áður fyrr um 40 ára skeið. Hafði byrjað að fá
þrimla í andlitið sumarið áður og' var eitthvað undir læknishendi,
en sjúkdómurinn ekki þekktur þá. Virtist nú kliniskt séð með greini-
lega 1. tuberosa, en til frekari fullvissu var exciderað vefstvkki sent
til rannsóknar og reyndist positivt. Sjúklingurnn dó skömmu síðar,
og' er nú enginn holdsveikur í héraðinu, svo að vitað sé.
Húsavíkur. Sömu 2 sjúklingarnir og undanfarið. Eru þau bæði
við beztu heilsu, og her ekkert á þeim.
5. Sullaveiki (echinococcosis).
Töflur V—VI.
Sjúklingafiöldi 1926—1935 :
1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935
Tala sjúkl. . 46 46 43 30 12 11 10 15 16 6
I)ánir 12 8 10 8 6 11 6 6 4 3
Tala sjúklinganna er hér greind samkvæmt mánaðarskrám. Á árs-
yfirliti yfir sullaveika, sem þorizl hefir úr öðrum héruðum nema úr
Rvík, Reykjarfj. og Rangár er gelið um 15 sullaveikissjúklinga, alla