Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Page 45
43
21. Kossageit (impetigo contagiosa).
Töflur II, III oí5 IV, 21.
Sjiíklingcifíöldi 1926—1935 :
lt)2fi 1927 1928 1929 1980 1981 1932 1933 1934 1935
Sjúkl......... 159 98 137 93 69 61 72 102 70 43
Læknar láta þessa getið:
Ögur. Er hér frekar sjaldgæf.
Ö.rarfí. Var frennir sjaldgæf og er það þessi árin, saman borið við
það, sem fyrr var, en þá gekk hún hér stöðugt og yfirgaf varla sum
heimilin árið út.
Fljótsdals. Veikin sjaldgæf hér.
Norðfí. Mér virðist þessi kvilli hafa verið tiðari áður — fyrir 5—10
árum og fyrir þann tíma.
Regðarfí. Er hér alltíð, en ekki skráð. Fólk kemur og biður um
smyrsli við „sárasótt“.
Hornafí. Fremur sjaldgæf hér.
Síðu. Stingur sér árlega niður.
22. Stingsótt (pleuritis epidemica).
Töflur II, III og IV, 22.
Sjúklingafíöldi 1926—1935 :
1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935
Sjúkl......... 565 144 21 17 46 85 91 10 28 30
Greinilegur faraldur í einu héraði, Hornafj.
Læknar láta þessa getið:
Hornafí. Stingsótt hefi ég aldrei upplifað fyrr en á þessu ári. Var
ég sjálfur einn af sjúklingunum, og vænti því, að sjúkdómsgreining
sé sæmilega örugg. Stóð veikin ca. vikutíma með hita 38 39 stig og
verk í thorax, oftast í hægri síðu. Heyrði engin núningshljóð. Var
mjög væg og minnti i mörgu á hálsríg (torticoll. rheum.), sem stund-
um fylgir kveffaröldrum, en getur verið alveg sjálfstæður (án kvefs).
Síðu. 2 menn veiktUst á sama heimili með % mánaðar milli-
bili. Var hægra megin á báðum sjúklingunum. Þetta voru menn á
bezta aldri, 26 og 48 ára, karlmenn, og höfðu báðir verið hraustir áður.
Þegar ég kom til sjúklinganna, voru jieir báðir með hitahækkun 38,5
stig, en höfðu þá verið veikir í 1 2 daga, og sennileg'a hitinn eitt-
hvað hærri í byrjun. Núningshljóð voru naumast heyranleg fyrst,
en eftir fáa daga heyrðust. þau á allstórum bletti yfir h. scapula, en
deyfðust aftur ótrúlega fljótt, er sjúklingunum fór að hatna. Annar
maðurinn fékk velgju og uppsölu, og um þær mundir, sem hitinn var
að verða normal, varð hann dálitið gulur. Þessi maður var lengi frá
verkum. Hinn lá ca. viku i rúminu, klæddist strax, er hiti var orðinn
eðlilegur og fór fljótlega að starfa, sem þó í byrjun aðallega var eftir-
lit með vinnu annara. En báðir telja sig hafa fundið til eftirstöðva
iram eftir sunuinu, jafnvel út sláttinn. Sjúkdómsins varð svo ekki
víðar vart, og ekkert varð vitað um það, hvaðan hann hafði borizt,
enda heimili sjúklinganna í gestgötu.