Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Síða 70
eru í flestum hreppum framkvæmdar vor og haust, en hversu sam-
vizkusamlega það er gert, skal ósagt látið.
Síðu. 2 nýir sjúklingar skráðir á árinu, en einn var skráður í
fyrra. Af þessuni þremur dó ein kona, 82 ára. Hafði hún fundið til
sjúkdómsins í fjölda mörg ár, enda fyrirferðin á kviðarholi meiri en
á nokkurri vanfærri konu. En þessi kona var á mjög afskekktu heimili.
Annar hinna nýju sjúklinga er kona, er Guðmundur sálugi Magnús-
son skar upp fyrir 20—30 árum. Hefir hún gengið með fistil síðan,
og nú er finnanleg't, að mein er farið að myndast á ný.
Grímsnes. Hefi aldrei séð þenna sjúkdóm síðan ég kom í héraðið.
Hundahreinsun fer fram á hverju ári.
6. Geitur (favus).
Töflur V—VI.
Á mánaðarskrám eru taldir 2 sjúklingar í Norðfj. og Vestmanna-
eyjahéruðum.
2 geitnasjúklingar leituðu Röntgendeildar Landspítalans, ann-
ar úr Vestinannaeyjum hinn úr Ólafsvíkurhéraði.
Læknar láta þessa getið:
Ögur. Stúlka sú, er hingað koin í október með lekanda, hefir einnig
geitur, en hefir óvart fallið af mánaðarskrá (des.). Er það sú hin
sama, sem getið er um í skýrslu héraðslæknisins á ísafirði 1932. Fer
hún væntanlega innan skamms til Reykjavíkur til lækninga, ásarnt
dóttur sinni, 2% árs, er gengur með sama sjúkdóm.
Ólafsfj. Geitur hefi ég aldrei orðið var við í héraðinu.
Húsavíkur. Geitur hefi ég ekki séð síðan ég kom í þetta hérað, og
tel víst, að þær séu hér ekki til.
Fljótsdals. Hefi aldrei séð þenna kvilla hér.
Norðfj. Við skólaskoðun rakst ég á 11 ára stúlku með favus capitis.
Voru blettir um allan kollinn. Var gerð tilraun til að koma því til
leiðar, að hún færi til Reykjavíkur til röntgenskoðunar, sem ekki
tókst.
Hornafj. Geitur ekki til.
7. Kláði (scabies).
Töflur V, VI og VII, 4.
.8 júklingafjöldi 1926—1935:
1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935
Sjúkl......... 336 329 345 279 109 102 164 160 198 249
Læknar láta þessa getið:
Borgarnes. Kláði stingur sér niður við og við. Nii kom kláði upp á
einu heimili — srnitun frá Rvík. Tilfellin eru læknuð um leið og' þau
gera vart við sig'.
Stykkishólms. Á mánaðarskrár hefi ég aðeins fært 2 með kláða,
en við sltólaskoðun reyndust 10 börn með þenna sjúkdóm, svo að
alls eru sjúklingarnir 12,