Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 26
24
Snuðárkróks. Var tíðust og verst í maí og júni. Upp úr henni komu
þyngstu tilfellin af mænusóttinni.
Hofsós. Var mikil hér i apríl og maímánuði. Fór hratt yfir og sýkti
víða allt heimilisfólkið í einu, en var að mestu levti laus við fvlgi-
kvilla.
Siglufj. Gekk í apríl og maí, tók mjög' marga, bæði börn og fullorðna.
Fylgdi henni hár hiti, en fáir fengu fylgikvilla. Einn dó.
Ólafsfj. Stakk sér niður í apríl og maí, en var væg. Fékk nokkra
útbreiðslu.
Svarfdæla. Kom ekki fyrir — nema ef kvefsóttarfaraldrarnir í
apríl—maí og júní—ágúst skyldu, annar eða báðir, hafa verið inflú-
enza, en ýmislegt var það í fari þeirra, sem á inflúenzu minnti, þótt
mér sýndist fleira mæla á móti.
Höfðahverfis. Gerði talsvert vart við sig í maí og júní, einkum á
börnum. Mjög algengt, að börnin fengu hitaköst hvað í hvað.
Iieijkdæla. Kom í héraðið í nlarz með mönnum frá Reykjavík.
Húsavikur. Seinustu daga marzmánaðar bar á kvefi, sem virtist in-
flúenza. í aprílbyrjun komu glögg inflúenzueinkenni í ljós, einkum
á börnum. Gekk hún svo maímánuð og fram í júní. Ekki var hún frá-
brugðin venjulegum inflúenzufaröldrum, en nokkuð kom fyrir af
otitis med. supp. og bronchopneumonia, einkum í maí. Mun hafa
komið frá Reykjavík.
Öxarfj. Barst sjóveg frá Reykjavík og Akureyri í april, var lítt næm
og fór óvíða yfir, enda vörðu sum heimili sig. Þó ég telji veikina til í
júní á mánaðarskrám, er sennilegra, að hún hafi dáið út í maí, en
framhaldið hafi verið byrjandi kikhósti. Veikin hafði sinn sérstaka
árssvip og var ekki létt. Byrjaði hægt, en hiti ós næstu 3 daga, rénaði
síðan og' stóð oftast um viku. En þrá og ólundarleg var þessi veiki, og
mörgum versnaði, jafnvel í rúminu, við óverulegustu áreynslu. Fyrir
mig persónulega voru það tíðindi, að ég fékk þessa pest og lá nær
viku, en hafði ekki fengið inflúenzu í 17 ár, eða síðan 1918.
Þistilfj. Inflúenzan, sem talin er í júní, var í færeyskri skútu, ný-
kominni frá Færeyjum. Lágu þar 8, þegar ég' koin um borð, en hinir
nýkomnir á fætur flestir. Lét ég ekki hafa frekari samgang við skipið.
Lá það inni 2—3 daga, og fór svo, án þess að veikin bærist í land.
Veiki með því háttalagi, að fólk bunkaðist niður í kös, með kvef-
pest og hitasótt, kom aldrei upp i héraðinu á árinu.
Seyðisfj. Inflúenza, bráðsmitandi, gaus hér upp í apríl. Hefir hún
eflaust borizt hingað með farþegum úr skipum að sunnan. Veikin var
slæm, hár hiti, 39—40 stig í 3—4 daga, mikill höfuðverkur og sárindi
fvrir brjósti. Sjúklingar voru lengi að ná sér á eftir.
Norðfj. Taldi ástæðu til að greina inflúenzu í 10 sjúklingum í apríl.
Fannst einkennin dálítið frábrugðin kvefinu, sem á undan g'ekk, og
brutust út í einkennilegum hnapp.
Reyðarfj. Gekk sem allþungur faraldur í maí—júlí, tók flesta þorps-
búa í Eskifirði og fór yfirleitt illa með fólk. Margir fengu otitis media
sem fylgikvilla. 2 dauðsföll.
Fáskrúðsfj. Um og eftir áramótin stakk sér niður inflúenza. í marz-
mánuði bar lítið á henni, en í apríl tók hún sig upp aftur og hélzt