Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 57
sókn á fjölskyldu hans kom í ljós, að auk konunnar var einnig sýkt
stúlkubarn á 2. ári. Var það sent til ísafjarðar á sjúkrahús. Ennfrem-
ur sendi ég þangað koíiu, sem búsett var í öðrum hreppi. Hjá öllum
þessum sjúklingum var origo infectionis hin sama. Nr. 5 var stúlka,
er hingað kom úr öðru héraði, með gon. chron.
Reijkjarfj. Nokkur tilfelli, fleiri en sliráð eru af lekanda (Ekkert
skráð!), komu fyrir á síldarstöðvunum, eins og þeim venjulega fylgir.
Hólmavíkur. 2 tilfelli komu fyrir af lekanda. Maður vitjaði læknis
og hafði fengið sjúkdóminn af stúlku á fremur afskekktum sveita-
bæ. Gerði héraðslæknir ráðstafanir til að stúlkan fengi læknishjálp,
og hefir sjúkdómsins ekki orðið vart síðan.
Blönduós. Kynsjúkdómar hafa mcr .vitanlega ekki komið fyrir á
árinu.
Sauðárkróks. Ekki er það útilokað, að iekandi kunni að vera hér
á slæðingi, meira en opinbert er, því að sumir káka sjáifir við lækn-
ingu á þessum kvilla og fá ekki fullan bata.
Siglufj. A árinu hafa verið skrásettir 51 sjúklingur, þar af (i út-
Iendingar. Þetta verður að teljast allhá tala, en að því er að gá, að
fæst af þessu fólki er innanhéraðs, — flest er aðkomufólk, sem leitar
hingað atvinnu vfir sumarmánuðina. Mjög margt af þessu fólki hefir
notið ókeypis læknishjálpar, og er sú ráðstöfun vafalaust til stórbóta,
stuðlar að bata og heftir úthreiðslu. En um eitt vanhagar tilfinnan-
lega hér á Siglufirði, og það er „klinik", þar sem kontir gætu fengið
meðhöncllun. Svo hagar til hér, að aðkomufólkið hýr í sjóverbúðum,
eða svonefndum „bröggum", karlmenn sér og konur sér, en 6—8
K) inanns í herhergi. Þegar svo hittist á, að kona, sem hýr í svona
sambýli, sýkist af lekanda, getur hún auðvitað eigi læknað sjálfa
sig án þess að sambýliskonurnar verði varar við, hvað á seiði er, og
afleiðingin verður sú, að konan vanrækir lækninguna o.g kemur svo
heim til sín um haustið og srnitar þar út frá sér. Einn útlendingur
með syphilis tertiaria lá um skeið hér á sjúkrahúsinu, en fór síðan
heim með slcijii sínu.
Akureijrar. Þetta ár kom það fyrir, að kona og 2 dætur henn-
ar á bæ í . ...dal reyndust hafa syfilis án þess að þær hefðu nokkra
huginynd um sjálfar. Eldri dóttirin (24 ára), dugleg og siðsöin stúlka,
áður heilsugóð, fékk mjög þráláta augnveiki, og eftir að hafa um
hríð verið undir hendi tveggja lækna án þess að fá nokkra hót, fór
hún suður til Reykjavíkur til að leita þar .sérfróðra lækna. Augh-
læknir þar sá, að hún hafði retinitis eftir undangengna keratitis
parenchymatosa. Hann gaf síðan landlækni skýrslu um sjúkdóm
stúlkunnar og lagði til, að grennslast væri eftir smitunaruppsprettu
hjá fjölskyldu sjúklingsins hér fyrir norðan. Eftir tilmælum land-
læknis fór ég vestur í dalinn til að kynna mér málavöxtu, og tók ég
hlóð úr báðum foreldrum og systkinum til að senda til Rannsóknar-
slofu Háskólans, en skoðaði og spurði alla heimilismenn. Rlóðrann-
sóknin sýndi, að þær 3 mæðgur höfðu jákvætt Wassermanns-
próf, en maðurinn og 3 börn önnur eklci. Af anamnesis mátti ráða, að
konan hefði sýkzt af islenzkum sjómanni á einu skipi Eimslcipafé-
lagsins, nokkru áður en hún lcynntist nianni sínum og seinna giftist