Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 140
138
lofa mér að mæla þig? eða því um líkt, og fáist það ekki, þá er frá-
sögnin þessi: Það fæst ómögulega til þess. Annað er, hvað börn-
in eru skítug, — einkum innanklæða — og þá fæturnir. Einstaka
rnæður, og það ekkert freniur þær efnaðri, hafa þá venju að þvo börn-
unum um skrokkinn vikulega, en sorglega fáar. Þriðja er það, hve
mörg börn, og þá eðlilega þeirra, sem barnflestir og fátækastir eru,
eru látin vinna snemma og mikið. Þau hafa mörg sama og engan
tíma til leika eftir að þau fara að ganga í skóla. Því að nú kemur
það fjórða — og ekki bezta — þessi óheilla skólaseta, sem alltaf er
að lengjast. Það geta flestir orðið sammmála um, að minimalt læra
þau og alls ekki meira með lengri skólatíma. Innivistin er of löng.
13. Meðferð þurfalinga.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskago. Meðferð þurfalinga er góð, t. d. má geta þess. að hrepps-
nefnd Ytri-Akraneshrepps lét byggja nýtt timburhús yfir eina fjöl-
skyldu, með öllum nýtízku þægindum.
Borgarnes. Heyri sjaldan talað um þurfalinga hér, — held, að þeir
séu ekki mjög' margir og meðferð á þeim, sem til eru, sæmileg. Fáar
fjölskyldur eru hér á framfæri hreppsfélaga, og gamalmenni og fá-
vitar eru flestir á framfæri einstaklinga.
Ögur. Meðferð þurfalinga má telja mjög góða.
Hesteyrar. Meðferð þurfalinga góð.
fílönduós. Meðferð þurfalinga þeirra, sem komið er fyrir á heim-
ilum, er að því er frekast verður vitað, alstaðar góð og mannúðleg.
Húsakynni þau, sem einstaka fjölskyldur þurfamanna búa við, eru
aftur á móti ekki sæmileg'.
Húsavíkur Meðferð þurfalinga er hér svo góð, að þeir lifa í rauninni
betra lífi en þorri almennings. Þurfamönnum fjölgar alltaf, sem
raunar er eðlilegt, þar sem margir hafa ekki neina atvinnu meira en
4—5 mánuði á ári, og eiga svo að lifa af þeim tekjum allt árið.
Þistilfj. Meðferð þurfalinga sania og' á öðru fólki, eftir því sem ég
bezt veit. í einum hreppi héraðsins er mér kunnugt um, að þurfa-
heimilum hefir verið lagður ár eflir ár svo mikill styrkur, að tekjur
heimilanna með öllu hafa verið æði miklu hærri en fjölda annara
heimila í sveitinni. En þar veit ég líka af því eina heimili í héraðinu,
sem ég' hefi grun um, að hafi beinlínis liðið skort, og hefir einskis
styrks notið.
Hróarstungu. Meðferð þurfalinga er hér allgóð, eftir því sem ég
hezt veit.
Norðfj. Meðferð þurfalinga er víst bærileg, og aðalhættan á næst-
unni, að kaupstaðurinn geti ekki hjálpað. En þá kemur ríkið — á
meðan það getur.
Reyðarfj. Meðferð þurfalinga er góð.
Vestmannaeyja. Meðferð þurfalinga virðist sæmileg.
14. Ferðalög héraðslækna og flutningur sjúkra.
Læknar láta þessa getið:
Blönduós. Læknisferðir á sumrum fara allar fram á bílum og á